Áfangahúsið Brú

Áfangahúsið BrúSamhjálp opnaði Áfangahúsið Brú í maí 2006.Samhjálp hefur rekið sín eigin áfangaúrræði allt frá 1. desember 1986 er áfngaheimili var opnað að Hverfisgötu 42 en þar gátu allt að 15 einstaklingar dvalið í einu. Í maí 2006 var áfangahúsið flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði að Höfðabakka 1. Í húsnæðinu, sem áður var rekið sem gistiheimili, eru 19 einstaklingsíbúðir fullbúnar húsgögnum. Allar íbúðirnar eru búnar eldhúskróki ásamt góðu baðherbergi sem jafnframt rúmar þvottavél og þurrkara ef svo ber undir. Til þess að komast að í áfangahúsinu þurfa umsækjendur að hafa lokið meðferð í Hlaðgerðarkoti. Þeir verða að hafa atvinnu og þurfa að hafa ráðið sig í starf að lágmarki 4 vikum eftir að þeir flytja inn. Hingað til hafa allir fengið vinnu sem kærðu sig um. Íbúar greiða húsaleigu, innifaliði í henni er húsnæði búið húsgögnum og öðrum húsbúnaði, auk rafmagns og hita. Lágmarks dvalartími er 6 mánuðir. Markmið þeirrar félagslegu aðhlynningar sem veitt er í áfangahúsinu er að gera skjólstæðingum kleift að temja sér nýja lífshætti og varanlegt bindindi á eigin ábyrgð. Ein frumskylda íbúanna er að taka virkan þátt í félagsstarfinu í Háborg og er það hugsað sem þáttur af eftirmeðferðarstarfi Samhjálpar, auk þess þurfa íbúarnir að sækja AA fundi og viðtöl hjá ráðgjafa á göngudeild.

Afgreiðslutími

Skrifstofan er opin alla virka daga frá 09:00 til 15:00.

Nytjamarkaður er opin alla virka daga frá 13:00 til 18:00.

Söfnunarsímar

908 5001 til að gefa 1.000 kr.

908 5002 til að gefa 2.000 kr.

908 5003 til að gefa 3.000 kr.

Bankaupplýsingar

Kennitala: 551173-0389
Reikningsnr: 0115-26-2377

Hafi styrkveitandi í huga ákveðna starfsemi Samhjálpar skal það tilgreint í skýringu.

Gefa á nytjamarkað

Viljir þú gefa eitthvað á nytjamarkaðinn getur þú komið með það á afgreiðslutíma eða haft samband í síma 561 1000.

Samhjálp | Stangarhyl 3a | 110 Reykjavík | Sími: 561 1000 | Netfang: samhjalp@samhjalp.is
© Samhjálp - Allur réttur áskilinn