dorkaslogoDorkas er kvennastarf Samhjálpar stofnað í febrúar 1982. Nafnið er sótt í Postulasöguna (9:36) þar sem segir frá konu í hópi lærisveinanna sem var „mjög góðgerðarsöm og örlát við snauða.“ Víða um heim eru félög sem bera nafn Dorkasar og starfa þau öll í anda hennar að margvíslegri kærleiksþjónustu.
Markmið starfsins hér á landi er að byggja upp konur til betra lífs.

Þær sem leitt hafa starfið frá upphafi eru: Sigríður Hrönn Sigurðardóttir (2009-) Marý Linda Jóhannsdóttir (2008-2009), Sigrún Jónsdóttir (2000-2008) og Ásta Jónsdóttir (1982-1999) sem jafnframt var stofnandi þess.


Um kvennastarfið Dorkas

Hápunktur starfsins eru mánaðarlegir fundir sem mikið er lagt í. Dúkuð borð, skreytingar, hugljúf tónlist og söngur sem allt höfðar til fegurðarskyns og kvenleika.
Uppbyggilegt efni er á fundunum byggt á 12 spora kerfinu og boðskap Jesú Krists. Konur fá tækifæri til að tjá sig um efnið og reynslu sína. Slökun og hugleiðsla eru fastir liðir á fundunum. Konurnar eru leiddar inn í kyrrðina, inn til fundar við þær sjálfar og Guð. Eftir slíka upplifun er gott að geta skrifað niður bænarefni sín vitandi að það verður beðið fyrir þeim. Boðið er upp á samtal og fyrirbæn í lok fundar auk dýrmæts samfélags yfir kaffibolla og meðlæti.
Samfélagið í Dorkas er mjög kærleiksríkt, það er bæði hlýtt og græðandi og opið öllum konum sem vilja kynnast Guði betur. Einnig kynnast konur nýjum konum á fundunum, einangrun er rofin, vinátta verður til og dýpkar. Hópurinn er litríkur og fjölbreytilegur en þær sem sækja fundina eru konur sem eru í meðferð í Hlaðgerðakoti, konur sem dvelja á áfangaheimilum, konur sem hafa lokið áfengis- og vímuefnameðferð, aðstandendur alkóhólista og konur sem hafa ekki neyslusögu að baki. Öll flóran blandast saman í Dorkas í kærleiksríku samfélagi og brotnar konur fá að upplifa að þær eru dýrmætar og mikils virði og að vissulega sé von. Þrjátíu til sextíu konur sækja fundina. Sem eru yfirleitt fyrsta mánudag í mánuði og byrja kl. 20 í Háborg, félagsmiðstöð Samhjálpar, Stangarhyl 3a í Ártúnsholti.
Hægt er að komast í samband við dorkaskonur, senda inn fyrirspurnir eða skrá sig á póstlista á: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpóstabottum, þú þarft að kveikja á JavaScript til að sjá það

Á göngudeild Samhjálpar býður Sigríður Hrönn upp á viðtöl fyrir konur 2 daga í viku. Margar konur vinna hjá henni úr erfiðri reynslu, aðrar vinna 12 sporin, enn aðrar létta á hjarta sínu eða fá stuðning. Viðtal á göngudeildinni kostar 2000 krónur. Hægt er að panta viðtal á skrifstofunni í síma 561-1000.

Þá er boðið upp á 12 spora vinnu í hópum. Fylgt er 12 spora efni Celebrate Recovery  eftir John Baker. Þær konur sem hafa áhuga á því að komast í hóp eða fá upplýsingar um 12 spora fundi hafi samband við Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpóstabottum, þú þarft að kveikja á JavaScript til að sjá það , Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpóstabottum, þú þarft að kveikja á JavaScript til að sjá það eða á skrifstofunni í síma 561-1000.

Dorkas er kvennastarf Samhjálpar stofnað í febrúar 1982. Nafnið er sótt í Postulasöguna (9:36) þar sem segir frá konu í hópi lærisveinanna sem var „mjög góðgerðarsöm og örlát við snauða.“ Víða um heim eru félög sem bera nafn Dorkasar og starfa þau öll í anda hennar að margvíslegri kærleiksþjónustu.

Markmið starfsins hér á landi er að byggja upp konur til betra lífs.

 

Þær sem leitt hafa starfið frá upphafi eru: Sigríður Hrönn Sigurðardóttir (2009-) Marý Linda Jóhannsdóttir (2008-2009), Sigrún Jónsdóttir (2000-2008) og Ásta Jónsdóttir (1982-1999) sem jafnframt var stofnandi þess.

 

 

Um kvennastarfið Dorkas

 

Hápunktur starfsins eru mánaðarlegir fundir sem mikið er lagt í. Dúkuð borð, skreytingar, hugljúf tónlist og söngur sem allt höfðar til fegurðarskyns og kvenleika.

Uppbyggilegt efni er á fundunum byggt á 12 spora kerfinu og boðskap Jesú Krists. Konur fá tækifæri til að tjá sig um efnið og reynslu sína. Slökun og hugleiðsla eru fastir liðir á fundunum. Konurnar eru leiddar inn í kyrrðina, inn til fundar við þær sjálfar og Guð. Eftir slíka upplifun er gott að geta skrifað niður bænarefni sín vitandi að það verður beðið fyrir þeim. Boðið er upp á samtal og fyrirbæn í lok fundar auk dýrmæts samfélags yfir kaffibolla og meðlæti.

Samfélagið í Dorkas er mjög kærleiksríkt, það er bæði hlýtt og græðandi og opið öllum konum sem vilja kynnast Guði betur. Einnig kynnast konur nýjum konum á fundunum, einangrun er rofin, vinátta verður til og dýpkar. Hópurinn er litríkur og fjölbreytilegur en þær sem sækja fundina eru konur sem eru í meðferð í Hlaðgerðakoti, konur sem dvelja á áfangaheimilum, konur sem hafa lokið áfengis- og vímuefnameðferð, aðstandendur alkóhólista og konur sem hafa ekki neyslusögu að baki. Öll flóran blandast saman í Dorkas í kærleiksríku samfélagi og brotnar konur fá að upplifa að þær eru dýrmætar og mikils virði og að vissulega sé von. Þrjátíu til sextíu konur sækja fundina. Sem eru yfirleitt fyrsta mánudag í mánuði og byrja kl. 20 í Háborg, félagsmiðstöð Samhjálpar, Stangarhyl 3a í Ártúnsholti.

Hægt er að komast í samband við dorkaskonur, senda inn fyrirspurnir eða skrá sig á póstlista á: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpóstabottum, þú þarft að kveikja á JavaScript til að sjá það

 

Á göngudeild Samhjálpar býður Sigríður Hrönn upp á viðtöl fyrir konur 2 daga í viku. Margar konur vinna hjá henni úr erfiðri reynslu, aðrar vinna 12 sporin, enn aðrar létta á hjarta sínu eða fá stuðning. Viðtal á göngudeildinni kostar 2000 krónur. Hægt er að panta viðtal á skrifstofunni í síma 561-1000.

 

Þá er boðið upp á 12 spora vinnu í hópum. Fylgt er 12 spora efni Celebrate Recovery  eftir John Baker. Þær konur sem hafa áhuga á því að komast í hóp eða fá upplýsingar um 12 spora fundi hafi samband við Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpóstabottum, þú þarft að kveikja á JavaScript til að sjá það , Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpóstabottum, þú þarft að kveikja á JavaScript til að sjá það eða á skrifstofunni í síma 561-1000.

 

 

Afgreiðslutími

Skrifstofan er opin alla virka daga frá 09:00 til 15:00.

Nytjamarkaður er opin alla virka daga frá 13:00 til 18:00.

Söfnunarsímar

908 5001 til að gefa 1.000 kr.

908 5002 til að gefa 2.000 kr.

908 5003 til að gefa 3.000 kr.

Bankaupplýsingar

Kennitala: 551173-0389
Reikningsnr: 0115-26-2377

Hafi styrkveitandi í huga ákveðna starfsemi Samhjálpar skal það tilgreint í skýringu.

Gefa á nytjamarkað

Viljir þú gefa eitthvað á nytjamarkaðinn getur þú komið með það á afgreiðslutíma eða haft samband í síma 561 1000.

Samhjálp | Stangarhyl 3a | 110 Reykjavík | Sími: 561 1000 | Netfang: samhjalp@samhjalp.is
© Samhjálp - Allur réttur áskilinn