Við hjá Samhjálp viljum minna alla á að nú fer hver að verða síðastur með að kaupa miða í happdrættinu okkar góða. Dregið verður nk mánudag þann 16.janúar. Svo þeir sem eiga eftir að kaupa sér miða verða endilega að gera það í þessari viku eða allra síðasta lagi um helgina :-). Það er til mikils að vinna og við getum gert ansi mikið fyrir þessar 1.500kr sem miðinn kostar.
Eins og flestir vita þá rekum við kaffistofuna sem er opin alla daga ársins og gefur fólki að borða án endurgjalds, erum með gistiskýlið okkar, Miklubrautarhúsin tvö og áfangaheimilin Brú og Sporið.
Við minnum einnig alla okkar sölumenn á að SKILA óseldum miðum hingað til okkar á skrifstofuna að Stangarhyl 3a í allra síðasta lagi næsta mánudag.
Að endingu þökkum við öllum okkar fjölmörgu velunnurum og ykkur öllum sem keypt hafa miðana okkar kærlega fyrir að sýna verkum okkar stuðning, án ykkar væri þetta ekki hægt.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur góða daga
Starfsfólk
Samhjálpar.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá 09:00 til 15:00.
Nytjamarkaður er opin alla virka daga frá 13:00 til 18:00.
908 5001 til að gefa 1.000 kr.
908 5002 til að gefa 2.000 kr.
908 5003 til að gefa 3.000 kr.
Kennitala: 551173-0389
Reikningsnr: 0115-26-2377
Hafi styrkveitandi í huga ákveðna starfsemi Samhjálpar skal það tilgreint í skýringu.
Viljir þú gefa eitthvað á nytjamarkaðinn getur þú komið með það á afgreiðslutíma eða haft samband í síma 561 1000.
Samhjálp | Stangarhyl 3a | 110 Reykjavík | Sími: 561 1000 | Netfang: samhjalp@samhjalp.is
© Samhjálp - Allur réttur áskilinn