Gistiskýlið að Þingholtsstræti 25 (1866) í Reykjavík er rekið í samvinnu við Reykjavíkurborg fyrir heimilislausa Reykvíkinga. Þar eru rúm fyrir 20 manns. Skýlið er opið frá klukkan 17.00 til 10 næsta dags, alla daga ársins. Í Gistiskýlinu fá menn hrein rúm og hreina bað- og þvottaaðstöðu. Þá er borinn fram hollur morgunverður daglega auk þess sem allir sem þangað leita fá kvöldhressingu, brauð og álegg, mjólk og kaffi.
Oftast sækja að Gistiskýlinu mjög veikir alkahólistar sem eiga að baki langa og stranga neyslu vímugjafa. Sumir þeirra hafa lifað á götum borgarinnar svo vikum skiptir þegar þeir knýja dyra. Stundum er líkamleg heilsa þeirra svo bágborin að kalla þarf til sjúkrabíl og leggja viðkomandi inn á spítala. Hefir samstarf við bráðamóttökur og göngudeild áfengissjúkra á Lsp Háskólasjúkrahúsi verið nauðsynleg í þessu sambandi. Á hinn bóginn er heilsa skjólstæðinganna stundum það góð að þeir eru færir um að leita sér að eigin húsnæði eftir skamma viðdvöl í Gistiskýlinu.
Hverjir starfa í Gistiskýlinu?
Á Gistiskýlinu starfa 6.vaktmenn auk yfirmanns. Þess eru mörg dæmi að „læknisfræðilega“ vonlaus tilfelli sem áður hafi leitað á náðir skýlisins, hafi náð bata eftir meðferð og lifi nú heilbrigðu lífi. Hafa sumir þeirra átt þess kost að starfa sem stuðningsfulltrúar í skýlinu og hjálpa meðbræðrum sínum við að ná fótfestu í lífinu. Samhjálp vill gjarnan að þeir sem ráðnir eru til starfa í Gistiskýlinu séu einstaklingar sem eiga auðvelt með að setja sig inn í aðstæður skjólstæðinganna, sé þess kostur.
Rekstrarsaga Samhjálpar og Gistiskýlisins
Fyrst tók Samhjálp við rekstri Gistiskýlisins af þáverandi Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar haustið 1990. Samhjálp hafði áhuga fyrir að færa út kvíarnar á vettvangi utangarðsmanna og fór þess á leit við Reykjavíkurborg að fá að taka við rekstri gamla farsóttarhússins í þeim tilgangi. Félagsmálastofnun hafði rekið Gistiskýlið um langt árabil. Starfsemi Samhjálpar á Hverfisgötu hafði vaxið jafnt og þétt og borið góðan árangur. Hugmyndin um að samtengja þessa starfsemi fékk góðar undirtektir hjá Reykjavíkurborg. Vistmenn Gistiskýlisins voru sameiginlegir skjólstæðingar Félagsmálastofnunar og Samhjálpar og því ekki úr vegi að láta á það reyna hvort breytt fyrirkomulag þjónaði betur hagsmunum skjólstæðinga skýlisins. Raunin varð sú að aðsókn að Gistiskýlinu jókst þegar Samhjálp tók við rekstrinum haustið 1990, lögð var mikil áhersla á að finna önnur úrræði fyrir skjólstæðinga þess og opna m.a. leið í meðferð í Hlaðgerðarkoti enda hæg heimatökin þar sem Samhjálp var með rekstur hvoru tveggja. Það var svo árið 1999, sama ár nýr forstöðumaður var ráðinn til Samhjálpar, að fráfarandi förstöðumaður fór þess á leit við Reykjavíkurborg og stjórn Samhjálpar að taka við rekstri skýlisins. Lauk þar með afskiptum Samhjálpar af rekstrinum. Um áramótin 2004/2005 lét þáverandi rekstraraðili skýlisins af störfum. Samhjálp hljóp þá undir bagga með þáverandi Félagsþjónustunni í Reykjavík og rak skýlið nánast frá mánuði til mánuðar í 8 mánuði en þá tók borgin ákvörðun um að semja ekki við utanaðkomandi aðila um reksturinn, heldur annast hann sjálf. Allt frá þeim tíma hefur Samhjálp lýst yfir áhuga sínum á að reka skýlið, enda hentar starfsemin vel með annnari starfsemi Samhjálpar meðal utangarðsfólks. Það var svo eftir að Velferðarsvið Reykjavíkurborgar auglýsti eftir rekstraraðila þ. 29. október 2006 að Samhjálp sóttist formlega eftir að taka að sér reksturinn . Skrifað var svo undir samning þess efnis við Velferðarsvið Reykjavíkur þ. 26. janúar 2007 og tók Samhjálp formlega við rekstrinum þ. 1. febrúar 2007. Í samningi er m.a. gert ráð fyrir náinni samvinnu við velferðarsviðið, sem og aðstoð um félagslega ráðgjöf til skjólstæðinganna svo sem frekast er kostur á.
Yfirmaður Gistiskýlisins er Þórir Haraldsson, dagskrárstjóri.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá 09:00 til 15:00.
Nytjamarkaður er opin alla virka daga frá 13:00 til 18:00.
908 5001 til að gefa 1.000 kr.
908 5002 til að gefa 2.000 kr.
908 5003 til að gefa 3.000 kr.
Kennitala: 551173-0389
Reikningsnr: 0115-26-2377
Hafi styrkveitandi í huga ákveðna starfsemi Samhjálpar skal það tilgreint í skýringu.
Viljir þú gefa eitthvað á nytjamarkaðinn getur þú komið með það á afgreiðslutíma eða haft samband í síma 561 1000.
Samhjálp | Stangarhyl 3a | 110 Reykjavík | Sími: 561 1000 | Netfang: samhjalp@samhjalp.is
© Samhjálp - Allur réttur áskilinn