Göngudeild Samhjálpar er til húsa í höfuðstöðvunum að Stangarhyl 3A í Ártúnsholti. Meginstarfsemi hennar felst í ráðgjafarþjónustu. Þeir sem helst nýta sér þjónustu göngudeildarinnar eru skjólstæðingar Samhjálpar sem lokið hafa meðferð í Hlaðgerðarkoti, aðstandendur þeirra, eða fólk sem tengist stofnuninni á einhvern annan hátt. Göngudeildin er hluti af eftirmeðferðarstarfi Samhjálpar og hafa íbúar Áfangaheimila Samhjálpar greiðan aðgang að henni.
Ráðgjafar á göngudeild eru Þórir Haraldsson ICADC* og Vilhjálmur Svan Jóhannsson ICADC*, þeir sjá um almenn viðtöl. S. Hrönn Sigurðardóttir Cand. theol. CADC** og hjúkrunarfræðingur er með sálgæsluviðtöl. Viðtal á göngudeild kosta 2000 krónur.
Auk almennra viðtala er Magnús Stefánsson CADC / ICPS** dagskrárstjóri forvarna- og fræðslu, með viðtöl fyrir unglinga í vanda og aðstandendur þeirra á föstudögum en einnig býður Magnús sjálfstætt upp á einstaklingsmiðaða göngudeildarmeðferð. Tímar hjá Magnúsi kosta 4.900 krónur. Viðtöl þarf að panta hjá Magnúsi sjálfum í síma.897-1759. Allir starfsmenn göngudeildarinnar eru með IC&RC*** próf í vímuefnaráðgjöf.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá 09:00 til 15:00.
Nytjamarkaður er opin alla virka daga frá 13:00 til 18:00.
908 5001 til að gefa 1.000 kr.
908 5002 til að gefa 2.000 kr.
908 5003 til að gefa 3.000 kr.
Kennitala: 551173-0389
Reikningsnr: 0115-26-2377
Hafi styrkveitandi í huga ákveðna starfsemi Samhjálpar skal það tilgreint í skýringu.
Viljir þú gefa eitthvað á nytjamarkaðinn getur þú komið með það á afgreiðslutíma eða haft samband í síma 561 1000.
Samhjálp | Stangarhyl 3a | 110 Reykjavík | Sími: 561 1000 | Netfang: samhjalp@samhjalp.is
© Samhjálp - Allur réttur áskilinn