Háborg

Samhjálp opnaði nýja félagsmiðstöð í maí 2006. Samkeppni var haldin um nýtt nafn félagsmiðstöðvarinnar. Guðmundur St. Ragnarsson varð hlutskarpastur, hans tillaga var Háborg. Hugmyndina sótti hann í Biblíuna en m.a. segir í Sálmi 91.1-2: Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta, sá er gistir í skugga Hins almáttka, sá er segir við Drottin: ,,Hæli mitt og háborg, Guð minn, er ég trúi á!" Í þessari merkingu er félagsmiðstöðin skjól og virki þeim er hana sækja og á það mjög vel við, þar sem hún er rekin sem úrræði fyrir áfengis- og vímuefnaneytendur í bata. Það skal tekið fram að áhugafólki og aðstandendum er að sjálfsöguð velkomið að sækja alla opna dagskrárliði félagsmiðstöðvarinnar.

Nýja félagsmiðstöðin leysir Þríbúðir af hólmi, en Þríbúðir opnaði 2. apríl 1983. Félagsstarf Samhjálpar fer fram í félagsmiðstöðinni. Þar eru haldnar almennar samkomur einu sinni í viku og standa þær öllum opnar. Samkomur á fimmtudagskvöldum eru eins og miðpunktur félagsstarfsins og án efa fjölmennasti liðurinn. Þangað koma allt að 200 manns hverju sinni. Er þar um að ræða bæði núverandi og fyrrverandi skjólstæðinga stofnunarinnar, aðstandendur þeirra sem eru í meðferð á hverjum tíma, svo og áhugafólk um starf Samhjálpar.

Auk samkomuhaldsins á fimmtudögum fer margskonar önnur starfsemi fram í Þríbúðum í hverri viku. Má þar nefna námskeiðahald, fræðsluhópa og bænasamverur. Á föstudögum eru opnir AA fundir. Sérstök vetrarnámskeið hafa verið haldin í Þríbúðum um ákveðið þema úr Biblíunni. Hafa þessir liðir jafnan verið fjölsóttir en þeir eru opnir öllum. Einu sinni í mánuði koma Dorkas-konur saman í félagsmiðstöðinni á sérstökum fundum fyrir konur. Á Þriðjudagskvöldum kemur unga fólkið saman og vinna í eigin bata auk þess að veita hvort öðru stuðning. Þá er ótalið opið hús sem efnt er einu sinni til tvisvar á ári. Þangað koma skjólstæðingar og velunnarar Samhjálparstarfsins og eiga saman dagstund yfir kaffi, kökum og léttum söng. Stundum eru fengnir sérstakir listamenn til þess að koma fram í opnu húsi og má þar nefna hljóðfæraleikara, skáld og söngvara. Oft er húsfyllir í opnu húsi. Sett hefir verið upp myndlistarsýning í samkomusalnum.

Þá hafa bæði brúðkaup og brúðkaupsveislur farið fram í salnum en hann er leigður út til ýmiskonar veisluhalda. Sjá nánar:

salir.is

Afgreiðslutími

Skrifstofan er opin alla virka daga frá 09:00 til 15:00.

Nytjamarkaður er opin alla virka daga frá 13:00 til 18:00.

Söfnunarsímar

908 5001 til að gefa 1.000 kr.

908 5002 til að gefa 2.000 kr.

908 5003 til að gefa 3.000 kr.

Bankaupplýsingar

Kennitala: 551173-0389
Reikningsnr: 0115-26-2377

Hafi styrkveitandi í huga ákveðna starfsemi Samhjálpar skal það tilgreint í skýringu.

Gefa á nytjamarkað

Viljir þú gefa eitthvað á nytjamarkaðinn getur þú komið með það á afgreiðslutíma eða haft samband í síma 561 1000.

Samhjálp | Stangarhyl 3a | 110 Reykjavík | Sími: 561 1000 | Netfang: samhjalp@samhjalp.is
© Samhjálp - Allur réttur áskilinn