Dorkas
er systrafélag Samhjálpar stofnað í febrúar
1982. Nafnið er sótt í Postulasöguna (9:36)
þar sem segir frá konu í hópi lærisveinanna
sem var „mjög góðgerðarsöm og örlát
við snauða.“ Víða um heim eru félög
sem bera nafn Dorkasar og starfa þau öll í anda
hennar að margvíslegri kærleiksþjónustu.
Þær
sem leitt hafa starfið frá upphafi eru: Sigríður
Hrönn Sigurðardóttir (2009-) Marý Linda Jóhannsdóttir
(2008-2009), Sigrún Jónsdóttir (2000-2008)
og Ásta Jónsdóttir (1982-1999) sem jafnframt
var stofnandi þess.
Tilgangur
Tilgangur Dorkas er að konur fái að upplifa kærleika
Guðs og fái tækifæri til að miðla
honum áfram til annarra. Mánaðarlegir fundir félagsins
eru þungamiðja starfsins. Þar gefst samhjálparkonum
tækifæri til að hittast og kynnast. Á fundunum
í Dorkas íhugum við kærleika Guðs til
okkar. Við opnum okkur fyrir anda hans og leyfum honum að
snerta okkur og fylla.
Okkur gefst tækifæri
til að segja frá því sem Guð hefur gert
fyrir okkur eða því sem við þráum
að hann geri fyrir okkur. Við fáum einnig tækifæri
til að létta á hjarta okkar og fá fyrirbæn.
Svo syngjum við saman og biðjum. Við kveikjum á
kerti á bænaaltarinu og skrifum bænarefnin okkar
og leggjum þau þar. Síðan njótum við
samfélags hver við aðra yfir kaffibolla og góðum
kökum. Samfélagið í Dorkas er mjög kærleiksríkt,
það er bæði hlýtt og græðandi
og opið öllum konum sem vilja kynnast Guði betur.
Fundirnir
Samverurnar eru yfirleitt fyrsta mánudag
í hverjum mánuði og byrja kl. 20 í félagsmiðstöðinni
Háborg að Stangarhyl 3a í Ártúnsholti.
Fyrsti fundur vetrarins er mánudaginn 6. sepmber
kl. 20.
|