Framkvæmdastjóri
Heiðar Guðnason
|
|
Á árinu 1999 réð stjórn
Samhjálpar Heiðar Guðnason [heidar@samhjalp.is]
sem framkvæmdastjóra/forstöðumann Samhjálpar
og tók hann formlega við starfinu af fráfarandi forstöðumanni,
Óla Ágústssyni, þ. 1. janúar 2000 en Óli hafði veitt starfinu
forstöðu allt frá árinu 1977. Heiðar er fæddur
og uppalinn að Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð, sonur hjónanna Guðna Guðnasonar
og Jónheiðar Gunnarsdóttur. Áður en Heiðar tók við
starfi forstöðumanns, starfaði hann að vímu- og afbrotaforvörnum
hjá Forvarna- og fræðsludeild Lögreglunnar í
Reykjavík. Ásamt prófi frá Lögregluskóla
Ríkisins er Heiðar með ICRC* alþjóðlegt
próf í áfengis- og vímuefnaráðgjöf
auk MPNLP**.
Ásamt því
að veita starfi Samhjálpar forstöðu, situr Heiðar
í stjórn forvarnafélagsins Hættu áður
en þú byrjar, í fagráði IC&RC*
á Íslandi og í safnaðarstjórn Hvítasunnukirkjunnar
Fíladelfíu.

Sigrún Jónsdóttir
|
|
Sigrún Jónsdóttir [sigrun@samhjalp.is]
eiginkona Heiðars, fór fyrir kvennastarfi Samhjálpar og
starfaði m.a. sem vímuefnaráðgjafi kvenna á
Göngudeild Samhjálpar. Hún hefur nú tekið
við auknum verkum á skrifstofu, er gjaldkeri og aðstoðarmaður
framkvæmdastjóra og bókara. Sigrún er með
ICRC* alþjóðlegt próf í áfengis-
og vímuefnaráðgjöf ásamt því
að vera með menntun sjúkraliða og hársnyrti.
*International
Certification & Reciprocity Consortium Alcohol & Other Drug
Abuse Inc.
** Master Practitioner Neuro Linguistic Programming
Pistla eftir framkvæmdastjóra er að
finna undir liðnum pistlar.
Forstöðumenn Samhjálpar frá upphafi eru:
|
|
|
Georg Viðar Björnsson
1973 - 1977 |
Óli Ágústsson
1977 - 1999 |
Heiðar Guðnason
1999 - |
[Til baka] |