Í tilefni útkomu geisladisksins Líf, verður haldið útgáfuteiti, laugardagskvöldið 6.mars kl. 20.00 í Háborg, félagsmiðstöð Samhjálpar að Stangarhyl 3a í Reykjavík.
Aðgangseyrir er 2000 kr. og er geisladiskurinn Líf innifalinn í verðinu. Aðgöngumiðinn gildir sem happadrættismiði.
Fram koma: Guðni Már og Birgir Henningssynir, ekki bræður, ásamt hljóðfæraleikurum.
Kaffi amen band með Sigga kaptein í fararbroddi.
Einnig koma fram, hin frábæru: Maríanna Másdóttir, gospel og lofgjörðarsöngkona, Íris Guðmundsdóttir, gospel og lofgjörðarsöngkona, Erdna Varðardóttir, gospel og lofgjörðarsöngkona, Hrönn Svansdóttir, gospel og lofgjörðarsönkona, einnig verða óvænt atriði.
Kynnir er Valdimar Júlíusson.
Kaffi, konfekt og gott skap í bland við gleði og fögnuð. Allur ágóði rennur til Kaffistofu Samhjálpar.
Miðar seldir á skrifstofu Samhjálpar að Stangarhyl 3a í Ártúnsholti, einnig er hægt að panta miða í síma 561-1000.
|