
Stangarhylur 3 |
|
Göngudeild Samhjálpar er til húsa
í höfuðstöðvunum að Stangarhyl 3A í
Ártúnsholti. Meginstarfsemi hennar felst í ráðgjafarþjónustu.
Þeir sem helst nýta sér þjónustu
göngudeildarinnar eru skjólstæðingar Samhjálpar
sem lokið hafa meðferð í Hlaðgerðarkoti, aðstandendur
þeirra, eða fólk sem tengist stofnuninni á einhvern
annan hátt. Göngudeildin er hluti af eftirmeðferðarstarfi
Samhjálpar og hafa íbúar Áfangaheimila
Samhjálpar greiðan aðgang að henni.
Ráðgjafar á göngudeild
eru, Þórir Haraldsson
(ICADC)* og Vilhjálmur
Svan Jóhannsson (ICADC)*, þeir sjá um almenn viðtöl
og kostar hvert viðtal 1000 krónur.
Auk almennra viðtala er Magnús
Stefánsson (CADC / ICPS)** dagskrárstjóri forvarna-
og fræðslu, með viðtöl fyrir unglinga í
vanda og aðstandendur þeirra á föstudögum en
einnig býður Magnús sjálfstætt upp á
einstaklingsmiðaða göngudeildarmeðferð. Tímar
hjá Magnúsi kosta 4.900 krónur.
Viðtöl þarf að panta
með dags fyrirvara í síma 561 1000 á milli kl.
09 og 15.
Allir starfsmenn göngudeildarinnar eru með ICRC*** próf
í vímuefnaráðgjöf.
* Intenationally Certified Alcohol & Drug
Counselor
** Certified Alcohol & Drug Counselor
/ Intenationally Certified Prevention Specialist
*** International Certification
& Reciprocity Consortium Alcohol & Other Drug Abuse Inc.
[Til baka]