Orð





 
Hlaðgerðarkot

Um meðferðina Fróðleikur

Hlaðgerðarkot
Hlaðgerðarkot í Mosfellsdal.

 
Samhjálp hefir rekið meðferðarheimili að Hlaðgerðarkoti í Mosfellsdal frá árinu 1973. Þar eru rúm fyrir 34 einstaklinga. Legudagar í Hlaðgerðarkoti eru á bilinu 10 og 11 þúsund á ári.

Hér er hægt að nálgast ýtarlegar upplýsingar um Hlaðgerðarkot, m.a. um uppbyggingu meðferðarstarfsins, ýmsan sögulegan fróðleik um staðinn og nánasta umhverfi hans svo og ljósmyndir úr myndasafni staðarins. Þá er hér að neðan að finna forsögu þess að Hvítasunnukirkjan festi kaup á Hlaðgerðarkoti.

Upphafið

Samhjálp keypti Hlaðgerðarkot af Mæðrastyrksnefnd árið 1973 og hóf þegar í stað rekstur vistheimilis fyrir áfengissjúklinga. Reksturinn var greiddur með daggjöldum Tryggingastofnunar ríkisins í fjöldamörg ár en var settur á föst fjárlög ríkisins eftir að heimilið breyttist í afeitrunar- og meðferðarstöð.

Heimsóknir heilbrigðisráðherra

Hlaðgerðarkot heyrir undir Heilbrigðisráðuneytið sem hefur eftirlit með starfseminni. Tveir ráðherrar heilbrigðismála hafa heimsótt Hlaðgerðarkot í ráðherratíð sinni. Jón Kristjánsson, heimsótti Hlaðgerðarkot þann 20 mars 2003, ásamt Magnúsi Skúlasyni deildarstjóra. Þeir Jón og Magnús skoðuðu húsakynni stofnunarinnar og litu á aðstæður allar. Var þeim einnig kynnt þau áform sem uppi eru um að endurbyggja elsta húsið, en það verkefni er mjög brýnt. Ingibjörg Pálmadóttir fyrrum ráðherra heimsótti einnig Hlaðgerðarkot í ráðherratíð sinni. Einnin heimsótti Guðlaugur Þórðarson, núverandi ráðherra, Hlaðgerðarkot er hann starfaði sem borgarfulltrúi.

Endurbyggingin

Eitt brýnasta verkefni Samhjálpar í Hlaðgerðarkoti á næstu misserum verður að ljúka við endurbyggingu gamla hússins, sem byggt var á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Fyrsta hluta endurbyggingarinnar er lokið, en ekki verður öllu lengur hægt að skjóta á frest öðrum hluta. Opinbert fé til þessa verkefnis hefir ekki fengist ennþá og varð Samhjálp að kosta fyrsta hluta endurbyggingarinnar að mestu með sjálfsaflafé.

Niðurskurður

Sem kunnugt er bitnaði niðurskurður í heilbrigðiskerfinu 1994 á rekstri Hlaðgerðarkots eins og annarra áfengisstofnana. Varð Samhjálp að fækka legurýmum og draga úr starfseminni nokkuð til þess að mæta niðurskurðinum. Var legurýmum fækkað úr 30 í 25. Niðurskurðurinn hefir ekki fengist leiðréttur.

 

[Til baka]


  UPP

© 2002-2009.  Samhjálp, Stangarhyl 3A, 110 Reykjavík, sími 561 1000.
Afgreiðslutími skrifstofu er alla virka daga á milli kl. 09 og 15.
Ábyrgðarmaður: Heiðar Guðnason framkvæmdastjóri [
heidar@samhjalp.is ]
Vefstjóri: Kristinn Pétur[
kristinn@samhjalp.is ]
Allur réttur áskilinn.