Orð





 
Höfuðstöðvar

Höfuðstöðvar Samhjálpar eru að Stangarhyl 3A í Reykjavík. Þar eru skrifstofur, göngudeild og félagsmiðstöð til húsa og þar fer hluti forvarna- og eftirmeðferðarstarfsins fram, starf sem nú á sér 37 ára sögu og hefð í borginni. Starfsemi Samhjálpar skiptist í eftirtaldar greinar:

Stangarhylur 3, 110 R.

 

  • Háborg félagsmiðstöð.
  • Göngudeild. Ráðgjafarþjónusta.
  • Maríta. Forvarnasvið.
  • Brú. Áfangaheimili eftir meðferð.
  • Kaffistofan. Heitar máltíðir.
  • Dorkas. Hjálparstarf fyrir konur. Systrafélag.
  • Hlaðgerðarkot. Meðferðarheimli í Mosfellsdal.
  • Stuðningsbýlið. Áfangaheimili með miklum stuðning.
  • Heimilið. Heimili fyrir heimilislausa.
  • Gistiskýlið. Neyðarathvarf fyrir heimilislausa karlmenn.
  • Spor. Áfangaheimili.

    Samhjálparhúsin
    Hverfisgata 42.

     
    Samhjálp hóf fyrst starfsemi að Hverfisgötu 42 árið 1981 með því að festa kaup á jarðhæð hússins undir skrifstofur, kaffistofu og félagsmiðstöð. Fram að þeim tíma hafði Samhjálp leigt húsnæði Söngskóla Reykjavíkur við hliðina undir samkomuhald. Smátt og smátt eignaðist Samhjálp íbúðir á efri hæðum hússins, uns allt húsið var komið í umsjá stofnunarinnar. Auk jarðhæðar og 2. hæðar á Samhjálp sjálf tvær íbúðir á efri hæðum Hverfisgötu 42. Reykjavíkurborg hefir keypt hinar og leigt Samhjálp undir starfsemi sína.

     
    Hverfisgata 44
    Framhús Hverfisgötu 44.
     
    Árið 1997 færði Samhjálp út kvíarnar á Hverfisgötu með því að kaupa nágrannaeignina af Söngskóla Reykjavíkur. Er þar um að ræða bæði framhús og bakhús við Hverfisgötu 44, samtals um 300 fermetra. Þetta var einkum gert til þess að mæta vaxandi aðsókn að Kaffistofu Samhjálpar, sem starfrækt hafði verið við þröngan kost við hliðina frá árinu 1982. Framhúsið er enn í endurbyggingu og verður tekið í notkun síðar. Lestu nánari upplýsingar um húseignina við Hverfisgötu 44 með því að smella hér!

    Eftir því sem árin liðu, þrengdi mjög að starfseminni á Hverfisgötu. Kom það til vegna vaxandi umsvifa og ásóknar í þá þætti starfsins sem fram fór á Hverfisgötu auk þess að mikil uppbygging í nágrenninu var þess valdandi að aðgengi var erfitt fyrir stóran hóp þeirra sem nota þjónustuna. Því var síðla árs 2005 keypt húsnæði að Stangarhyl 3 í Ártúnsholti. Þar eru nú félagsmiðstöð, göngudeild og skrifstofur Samhjálpar til húsa. Á skrifstofunni fer öll stjórnsýsla fram, daglegur rekstur stofnunarinnar og almenn afgreiðsla. Hluti forvarna- og eftirmeðferðarstarfsins fer fram á skrifstofunni. Aðsetur Styrktarfélags Samhjálpar er í höfuðstöðvunum, þar er einnig aðsetur Samhjálparblaðsins auk annarrar útgáfustarfsemi. Framkvæmdastjóri er staðsettur á skrifstofu, svo og skrifstofustjóri, gjaldkeri og dagskrárstjóri Brúar og Kaffistofu. Afgreiðslutími skrifstofu er alla virka daga á milli kl. 9 og 15. Símanúmer skrifstofu og göngudeildar er 561-1000.

 

[Til baka]


  UPP

© 2002-2009.  Samhjálp, Stangarhyl 3A, 110 Reykjavík, sími 561 1000.
Afgreiðslutími skrifstofu er alla virka daga á milli kl. 09 og 15.
Ábyrgðarmaður: Heiðar Guðnason framkvæmdastjóri [
heidar@samhjalp.is ]
Vefstjóri: Kristinn Pétur[
kristinn@samhjalp.is ]
Allur réttur áskilinn.