Orð





 
Miklabraut 20

Stuðningsbýli Samhjálpar að Miklubraut 20

Heimili fyrir heimilislausa

Þann 15. maí 2002. opnaði Samhjálp í samvinnu við Félagsþjónustuna í Reykjavík, heimili fyrir heimilislausa Reykvíkinga, að Miklubraut 20.

Heimilið sem nefnist Heimilið, hýsir 7 til 8 einstaklinga. Ekki annar það þörfinni en talið er að nokkrir tugir, aðallega karlmanna, séu afar illa staddir, þ.e. hafi ekki um langt skeið, átt samastað sem hægt er að kalla heimili. Þegar einstaklingur býr við slíkar aðstæður svo mánuðum eða jafnvel árum skiptir, hefur það veruleg áhrif á hans andlegu líðan og mynd veruleikans brenglast og batahorfur minnka.

Því miður hefur oft gætt fordóma í samfélaginu gagnvart þessum einstaklingum og margir til sem ekkert vilja af þeim vita eða telja að ekkert skuli gert þeim til bjargar. Hver sé sinnar gæfu smiður og orsök þess hvernig komið er, sé að finna í getuleysi einstaklinganna til að bjarga sér líkt og ,,allir" geri. Sem betur fer hefur þetta viðhorf heldur verið á undanhaldi og skilningur manna aukist gagnvart þeim einstaklingum sem farið hafa aðra leið en flestir aðrir, hvort sem orsök þess er vímuefnavandi og eða geðsjúkdómar. Í þessu sambandi kemur í hugann sagan af skítugu börnunum hennar Evu, börn sem þurfti að fela vegna þess að þau voru ekki nógu hrein og stóðust ekki samanburð við hreinu börnin. Því miður er það ennþá þannig með marga, þeir loka augunum fyrir neyð þessa hóps, vegna þess að tilvist hans truflar mynd veruleika og velmegunar. Ekki má þó gleyma þeim sem hafa látið verkin tala og hafa á þann hátt sýnt skilning og samúð með þeim sem á einhvern hátt hafa misst taktinn og geta ekki tekið þátt í lífsgæðakapphlaupinu. Þar eiga í hlut bæði fyrirtæki og einstaklingar og fyrir þann stuðning erum við afar þakklát.

Það var afar gleðilegt að geta stigið þetta skref að veita hluta þess hóps, sem fallið hefur undir þá skilgreiningu að vera heimilislausir og oft afskiptir, stað sem þeir geta kallað heimili. Þetta hefði ekki verið mögulegt ef ekki hefði komið til öflugur stuðningur Félagsþjónustunnar í Reykjavík. Þar fór fremst í flokki ásamt sínu ágæta samstarfsfólki, Lára Björnsdóttir félagsmálastjóri. Félagsþjónustan, sem átti frumkvæði að stofnun þessa heimilis, leitaði eftir liðsinni Samhjálpar og nú hefur samtakamáttur okkar gert þennan draum að veruleika.

Aðsetur Heimilisins er að Miklubraut 20 í veglegu og fallegu húsi. Húsið sem er tvær hæðir, ásamt risi og kjallara, er búið nýjum húsgögnum, að mestu frá húsgagnaverslun Línunnar að Suðurlandsbraut og Húsgagnaheimilinu í Grafarvogi en þessir aðilar, ásamt fleirum, gáfu okkur afar hagstæð verð.

Í stuðningsbýlinu hafa allir íbúar sér herbergi en setustofa, eldhús og þvottaaðstaða er sameiginleg. Boðið er upp á morgunmat og eina heita máltíð á dag, aðrar máltíðir sjá íbúar um sjálfir.

Gert er ráð fyrir að heimilismenn verði í tengslum við ráðgjafa hjá félagsþjónustunni en unnið verður í samvinnu við íbúa og starfsmenn heimilisins út frá fyrirfram settum markmiðum og samkomulagi um félagslega ráðgjöf. Lögð er áhersla á góða samvinnu við þá sem vinna að geðheilbrigðis- og áfengismálum og aðra þá sem koma að málum hlutaðeigandi. Þjónustan er einstaklingsbundin og sveigjanleg.

Líklegt er að einhverjir komi til með að eiga þarna varanlegt heimili en aðrir aðeins tímabundið. Mikið umburðarlyndi ríkir á heimilinu og verður það aðeins í undantekningartilvikum sem mönnum verður vísað út.

Til þess að eiga möguleika á búsetu á heimilinu, þarf að sækja um hjá viðkomandi borgarhlutaskrifstofu Velferðarsviðs Reykjavíkur. Sérstakt inngönguteymi sér síðan um forgangsröðun umsókna og úthlutar herbergi í samráði við Þóri Haraldsson dagskrárstjóra stuðningsbýla Samhjálpar, en hann er jafnframt yfirmaður heimilisins. Fyrir utan yfirmann vinna sex stuðningsfulltrúar á heimilinu, þeir vinna á sólarhringsvöktum, ýmist 2 eða 3 daga í einu með 3 eða 2 daga fríi á milli vakta. Dagvakt er frá 8 til 19 og næturvakt (sofandi vakt) er frá 19 til 8.


Þórir Haraldsson, dagskrárstjóri.


Fram- og bakhlið Miklubrautarinnar.



Lára Björnsdóttir félagsmálastjóri og Heiðar Guðnason forstöðumaður Samhjálpar, skrifa undir samning um opnun heimilisins.


Arnór Már Másson, þáverandi yfirmaður stuðningsbýlisins, tekur við gjöf úr hendi
frú Láru Björnsdóttur, félagsmálastjóra Reykjavíkurborgar, við opnun heimilisins í maí 2002.
 

[Til baka]


  UPP

© 2002-2009.  Samhjálp, Stangarhyl 3A, 110 Reykjavík, sími 561 1000.
Afgreiðslutími skrifstofu er alla virka daga á milli kl. 09 og 15.
Ábyrgðarmaður: Heiðar Guðnason framkvæmdastjóri [
heidar@samhjalp.is ]
Vefstjóri: Kristinn Pétur[
kristinn@samhjalp.is ]
Allur réttur áskilinn.