Nokkrar umsagnir um forvarnafræðsluna
HÆTTU ÁÐUR EN ÞÚ BYRJAR


Fyrir hönd Áslandsskóla langar mig til þess að þakka fyrir okkur.

Miðvikudaginn 19. nóvember sl. fengu nemendur í unglingadeild Áslandsskóla fræðslu um skaðsemi fíkniefna. Fræðsluna fengu nemendur 8. og 9. bekkja skólans. Magnús Stefánsson skýrði frá reynslu sinni og sögu og gerði það einstaklega vel. Þarna leitaðist hann við að skýra út fyrir unglingunum hvernig heimur það er í raunveruleikanum sem neytendur fíkniefna lifa í. Ekki var hér um neinn hræðsluáróður að ræða, heldur virtist markmiðið vera að skýra út með faglegum forsendum lífið, hætturnar og afleiðingar eins og þær líta út fyrir þá sem hafa upplifað slíkt og eins og málið lítur út í raun og veru. Helgi Gunnarsson frá lögreglunni í Hafnarfirði skýrði svo út fyrir nemendum hver er afleiðing af lífi eins og Magnúsar, hvað standi að baki sakavottorði og fleira.

Mikil umræða skapaðist meðal nemenda, þeir voru slegnir og höfðu á orði að þessi fræðsla ætti seint eftir að hverfa úr minningunni.

Að kvöldi sama dags var fundur fyrir foreldra og forráðamenn nemenda í unglingadeild skólan (8. og 9. bekk). Á fundinn kom, auk Magnúsar og Helga, Páll Ólafsson frá Félagsþjónustunni í Hafnarfirði. Þá fluttu fulltrúar nemenda frábær erindi. Myndin Hættu áður en þú byrjar var sýnd og að sýningu lokinni voru umræður og fyrirspurnir. Á fundinum gafst foreldrum/forráðamönnum gott tækifæri til að fá upplýsingar um einkenni neyslu, hvernig bregðast skuli við ef grunur er um neyslu, hvert hægt er að leita o.sfrv.

Okkur þykir einstaklega góð sú hefð sem skapast hefur að bjóða foreldrum á kvöldfund í kjölfarið, þannig skapast umræðugrundvöllur heima um þetta vaxandi vandamál sem neysla fíkniefna sannarlega er.

Þá vil ég lýsa yfir ánægju með samstarfið við þá aðila sem að þessu komu og þykir mér ástæða til að nefna gott skipulag á verkefninu og jákvætt að finna fyrir samstarfi og samvinnu þessara aðila – lögreglu, félagsþjónustu og Maríta á Íslandi. Þá var þjónusta- og upplýsingastreymi frá fíkniefnadeild lögreglunnar með miklum ágætum.

Áslandsskóli og um leið allt hverfið í Áslandi og á Völlum er í hraðri uppbyggingu. Því höfum við einstakt tækifæri til að virkja forvarnir eins og þær eru hugsaðar. þ.e vera ekki skrefinu á eftir heldur á undan. Fræðslan “Hættu áður en þú byrjar” var miðar einmitt að því.

Kærar þakkir fyrir okkur og gangi ykkur vel með verkefnið áfram.

Náms- og starfsráðgjafi,
Áslandsskóla Hafnarfirði.




Kæri Magnús!!

Hæ, hæ, Ég heiti x og er í 9. bekk í Hvassaleitisskóla. Þú sem sagt hélst fyrirlestur seinasta þriðjudag fyrir okkur. Ég verð að segja að fræðslan var geðveikt áhrifarík. Ég hef eiginlega ekki hugsað um margt annað síðan. Samt er ég ekki í dópi né þekki ég engan sem er í dópi sem betur fer. Þess vegna finnst mér svo skrýtið að hafa verið með kökk í maganum síðan fræðslan var. Ég hef greinilega tekið þessu svona ýkt nærri mér. Myndin var nú líka alveg heví spúkí!! Þó að ég sé ekkert á leiðinni í dóp þá er ég líklegast hrædd um það því þú sagðir að hver sem er gæti lent í þessu. Ég stend mig vel í skóla og líka vel í fótboltanum en það skiptir víst engu máli er það?
Mér fannst ég einhvern veginn þurfa að senda þér póst og ég vona að þú nennir að lesa hann og jafnvel svara??
Ég var að pæla hvort það væri hægt að kaupa myndina “Hættu áður en þú byrjar” einhvers staðar??
Og líka… hvað hét söngvarinn sem söng “Burning up again” lagið eða hvað sem það heitir…það er GEÐVEIKT!
Ég vona að ég heyri frá þér og gangi þér sem best með að taka einn dag í einu.





Ég vildi bara þakka fyrir okkur.
Þetta var mjög áhrifamikið sérstaklega myndbandið. Heill salur af krökkum (sem kalla ekki allt ömmu sína.) sátu kyrr í rúmlega einn og hálfan tíma ..sem segir að efnið sé gott!

Sálfræðikennari og forvarnafulltrúi FVA



Sem foreldri í Háteigsskóla og fyrrverandi skólahjúkrunarfræðingur í öðrum grunnskóla í Reykjavík, vil ég þakka sérstaklega fyrir mjög áhrifaríka fræðslu um fíkniefnavarnir þeirra tríósins Magnúsar Stefánssonar frá Samhjálp, Eiríki lögreglumanns og Magdalenu frá Félagsþjónustunni 2.des. s.l. fyrir foreldra 8. bekkjar. Sjálf á ég börn þar í 8.og 10.bekk. Eftir þetta kvöld með þeim er maður meir á varðbergi og raunar sjokkeraður, og það sýnir sér einfaldlega að fræðslan þarf að fara neðar í grunnskólakerfinu miðað við þann heim sem við lifum og hrærumst í, foreldrar og börn. Bestu þakkir með von um áframhandandi samvinnu milli lögreglu, forvarnastarfsins og foreldra grunnskólabarna.

Kveðja



,,Vinur minn var búinn að versla sér dóp en hætti við að prófa eftir að hafa verið á fræðslunni".
Strákur í 1. bekk framhaldsskóla.


[Til baka]