Forvarnafræðsla forvarnafélagsins ,,Hættu áður en þú byrjar"
Kynning


Fræðsla á vegum forvarnafélagsins „Hættu áður en þú byrjar”, er samstarfsverkefni Marita á Íslandi sem er forvarnasvið Samhjálpar, lögreglunnar í Reykjavík og Reykjavíkurborgar. Félagið hefur verið með fræðslu um skaðsemi fíkniefna allt frá 1998.

Fræðslufulltrúi frá Maríta á Íslandi er aðalfyrirlesari en auk hans á fræðslufundinum eru fulltrúi lögreglunnar og félagsþjónustunnar með erindi. Tveir fræðslufulltrúar skipta með sér fundunum og er Magnús Stefánsson lykilmaður í fræðslunni eins og fyrri ár.

Sýndu sjálfstæði, segðu nei, er fyrir nemendur í 8. bekk og foreldra þeirra.

Fræðslufundur sem fer fram á skólatíma með nemendum og með foreldrum síðar. Sýndur er hluti af myndinni sem 9. bekkingar sjá um fíkniefnaneyslu og rætt við nemendur um skaðsemi fíkniefna og glansmyndir sem tengjast þeim heimi. Á fundinum með nemendum sér fræðslufulltrúi um fræðsluna en á foreldrafundinum eru auk hans með erindi fulltrúar lögreglunnar og Félagsþjónustunnar. Fundurinn með nemendum tekur eina klukkustund. En síðan er haldinn sameiginlegur fundur með foreldrum barna í 8. og 9. bekk sem tekur tvær klukkustundir.

Markmið með fræðslunni er að mæta aukinni þörf fyrir fræðslu fyrir þennan aldurshóp. Að ræða við nemendur og gera þeim grein fyrir að sífellt yngri einstaklingar eru að ánetjast fíkniefnum. Gera þeim einnig grein fyrir því að hver og einn ber ábyrgð á sínu lífi og mikilvægi þess að sýna sjálfstæði og segja nei. Á foreldrafundum er leitast við að hvetja foreldra til ábyrgðar á börnum sínum og standa saman. Kynna fyrir foreldrum „menningu” unglinga svo þau séu sem best undir það búin að takast á við unglingsár barnsins.

Hættu áður en þú byrjar, er fyrir nemendur í 9. bekk og foreldra þeirra.

Fræðslufundur fyrir nemendur á skólatíma og foreldra þeirra síðar. Sýnd er íslensk mynd þar sem reynt er að sýna veruleika fíkniefnaheimsins hér á landi. Fræðslufulltrúi, sem er óvirkur fíkill, ræðir við nemendur um fíknina og afleiðingar hennar m.a. á sitt eigið líf. Lögreglumaður ræðir um afleiðingar fíkniefnaneyslunnar m.a. út frá sakaskrá. Fulltrúi Félagsþjónustunnar ræðir m.a. um hvert foreldrar geta snúið sér til að fá aðstoð vegna barna sinna. Fundirnir taka tvær klukkustundir.

Markmið með fræðslunni er að reyna fá nemendur til að taka afstöðu gegn fíkniefnum og notkun þeirra. Reynt er að leiða nemendum fyrir sjónir hverjar afleiðingarnar eru. Börn og foreldrar þeirra eru hvött til að ræða um þessi mál sín á milli. Því er nauðsynlegt að þau fái sömu fræðslu, þó nálgun efnisins sé ólík á fundunum.

Eftirfylgd, er fyrir nemendur í 10. bekk og foreldra þeirra eða þá nemendur sem hafa áður fengið fræðsluna “Hættu áður en þú byrjar”.

Sameiginlegur fundur með nemendum og foreldrum. Á fundinum koma fram fræðslufulltrúi frá Maríta, lögreglumaður og starfsmaður Félagsþjónustunnar. Sýnd verður ný íslensk viðtalsmynd í fræðslunni. Fjallað er um þau tímamót í lífi unglinga sem verða við lok grunnskóla, það að taka ákvarðanir fyrir lífið, og hvernig vímuefnaneysla getur gert framtíðarsýnina að engu. Lögreglumaðurinn fjallar um framhaldsskólakemtanir og fleira í þeim dúr. Hópnum er skipt í tvo umræðuhópa, í öðrum hópnum eru unglingarnir sem Magnús Stefánsson fræðslufulltrúi ræðir við og í hinum hópnum eru foreldrar og umræðum þar stýrir fulltrúi Félagsþjónustunnar. Í lokin eru sameiginlegar umræður beggja hópa. Fundurinn tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir.

Markmið fræðslufundarins er að ræða um fíkniefni við foreldra og börn og um þá erfiðleika sem neyslan getur valdið. Vekja upp spurningar og reyna að leita svara við þeim.


Ef þið óskið eftir frekari upplýsingum um fræðsluna eða viljið panta hafið þá samband við Berlindi Eyjólfsdóttur í Forvarna- og fræðsludeild lögreglunnar í Reykjavík, alla virka daga á milli kl. 9 og 12 í síma 444-1146, netfang: berglind.eyjolfsdottir@lr.is.

[Til baka]