Á hverjum degi eru yfir þúsund manns á stofnunum í landi okkar af völdum alkahólneyslu eða annarra vímuefna. Leið hvers manns inn á slíka stofnun er hvössum þyrnum stráð. Og þá ekki einungis þeim sem eru þar heldur einnig miklum fjölda fólks sem tengist hinum veika. Vinnufélagar, vinir og kunningjar, makar, börn, systkini, mágar, mágkonur, foreldrar,tengdaforeldrar, afar, ömmur, föður eða móðursystkini , nágrannar og svona má lengi telja.
Þegar einstaklingur er kominn til meðferðar hefur mikið gengið á í lífi hans. Óendanlega margar tilraunir til ná stjórn á drykkju- eða fíkniefnaneyslu með breytingum á tegundum eða efnum en allt hefur komið fyrir ekki. Hvers kyns heitstrengingar, loforð um að dettta ekki í það á næstu vikum og svo framvegis. En því miður ekkert stendur fyrir fíkninni og heitstreingingarnar bresta og öllu því ferli fylgir mikið niðurbrot, skömm, reiði og sektarkennd.
Áfengið og önnur vímuefni hafa áhrif á heilastarfsemina og breytir hinu besta fólki í skrímsli. Það er engin furða að þessi þjóð sem Ísland byggir hafi ákveðið fyrir einni öld að banna áfengisneyslu hér á landi og í kjölfarið komu bannárin. Á þeim tíma var lítið að gera í tukthúsinu og á þeim tíma var bindindi eitt af stefjum kvennabaráttunnar sem og verkalýðshreyfingarinnar. Mikið var gert til að sýna börnum fram á skaðsemi og böl áfengisneyslunnar. En nú er öldin önnur og áfengisneysla er hafin upp til skýjanna, gerð höfug, menningarleg og fín. Það er mikil mótsögn þegar íþróttastjörnur unglinganna bera á sér áfengisauglýsingar á miklum kappleikjum og einnig þegar keppnisvöllurinn er umkringdur skiltum sem hvetja vallargesti til drykkju. Kampavín eftir sigra kemur einnig oft við sögu, en slíkt endar stundum í öðru en kampakæti.
Ég hvet alla sem að máli koma til að íhuga hve miklum og óendanlegum verðmætum er bjargað þegar einu barni er forðað úr klóm víns og vímuefna eða þegar komið er í veg fyrir að barn eða unglingur gangi inn á brautir bakkusar. Verum ófeimin að tjá okkur opinskátt um þessi mál. Leggjum þyngra á vogarskálarnar lífinu til góðs. Stöndum saman og lifum góðu lífi án áfengis og vímuefna.
Karl V. Matthíasson,
Framkvæmdastjóri Samhjálpar.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá 09:00 til 15:00.
Nytjamarkaður er opin alla virka daga frá 13:00 til 18:00.
908 5001 til að gefa 1.000 kr.
908 5002 til að gefa 2.000 kr.
908 5003 til að gefa 3.000 kr.
Kennitala: 551173-0389
Reikningsnr: 0115-26-2377
Hafi styrkveitandi í huga ákveðna starfsemi Samhjálpar skal það tilgreint í skýringu.
Viljir þú gefa eitthvað á nytjamarkaðinn getur þú komið með það á afgreiðslutíma eða haft samband í síma 561 1000.
Samhjálp | Stangarhyl 3a | 110 Reykjavík | Sími: 561 1000 | Netfang: samhjalp@samhjalp.is
© Samhjálp - Allur réttur áskilinn