Í upphafi nýs árs Samhjálpar

2011- 2012 - 2013

Samhjálp óskar landsmönnuIMG 3793m öllum  blessunar og friðar á árinu 2012.   Allir dagar ársins 2011 eru liðnir,  horfnir í aldanna skaut,  en minning  þeirra lifir.  Minningar sem mörgum eru erfiðar, fullar af sorg og jafnvel ósigrum . Aðrir munu horfa til ársins 2011 með  blik í auga vegna þess að dagar þess gáfu þeim gleði og sigra.  Það eru góðar minningar.

Samhjálp sér á hverju ári mikla og glæsilega sigra en verður einnig að lúta höfði  vegna  ósigra og vonbrigða sem fylgja  sjúkdómum  alkahólisma, sem kalla má sjúkdóm  sorgar og vonbrigða.

Á hverjum degi er hönd Samhjálpar útrétt  til fjölmargra sem líða vegna alkóhólisma og gleðilegt er að sjá hversu  margir geta komist frá þeim ógnum sem áfengisbölið er. 

Starf Samhjálpar byrjaði smátt . Í fyrstunni var það í bílskúr og þaðan fór það upp i Hlaðgerðarkot og svo kom Kaffistofan,  samkomuhaldið,  rekstur Gistiskýlisins og nú eru starfsstöðvarnar orðnar 8 og gríðarlega mikil viðkoma er hjá  Samhjálp í dag.  Á hverri nóttu sofa 106 manns i rúmum sem Samhjálp hefur búið um ef svo má að orði komast.

Eftir eitt ár mun Samhjálp halda upp á 40 ára afmæli sitt.  Viðfangsefni Samhjálpar á þessu  nýja ári, 2012 verður að koma fjármálunum í gott horf eftir  erfiðleika, sem steðjað hafa að vegna kreppunnar sem bitið hefur.  Samhjálp er alltaf vongóð. Nú standa yfir viðræður við Landsbanka Íslands og treystir Samhjálp á  yfirlýsingu bankans um nýjan sáttmála við þjóðina um samfélagslega ábyrgð. Ef vel gengur í þeim samningum verður mun auðveldara að sinna öllu því veika fólki sem til Samhjálpar leitar.

Á árinu 2012 horfir Samhjálp  einnig til þess að safna fyrir miklum endurbótum á Hlaðgerðarkoti og bæta aðbúnað allan fyrir skjólstæðinga sína. Þess vegna mun Samhjálp nota þetta ár til öflugri fjáraflana en verið hefur.  Það átak köllum við Lífróður Samhjálpar.

Samhjálp stígur óhrædd um borð til þessa róðurs því hún nýtur velvildar og elsku í samfélaginu vegna grundvallar hjálparstarfs síns, meðferðar og annars stuðnings, sem er fjölþættur.

Eftir því  sem starf Samhjálpar eflist  þeim mun öflugra verður samfélag okkar.  En í öllum þeim körlum og konum sem berjast við alkahólismann og fá bata býr gríðarlegur máttur og kraftur,  sem getur virkjast til góðs, blessunar og friðar fyrir þau sjálf,  fjölskyldur  þeirra, og samfélagið  allt.    Leggjumst á árar og róum á lygnan sæ gjöfulla miða.

Samhjálp þakkar innilega öllum þeim sem lagt hafa starfinu lið í smáu sem stóru og biður Guð að blessa þau öll í lífi og leik.  Samhjálp þakkar einnig öllum skjólstæðingum sínum góða samleið og vináttu og biður þeim Guðs blessunar.

Afgreiðslutími

Skrifstofan er opin alla virka daga frá 09:00 til 15:00.

Nytjamarkaður er opin alla virka daga frá 13:00 til 18:00.

Söfnunarsímar

908 5001 til að gefa 1.000 kr.

908 5002 til að gefa 2.000 kr.

908 5003 til að gefa 3.000 kr.

Bankaupplýsingar

Kennitala: 551173-0389
Reikningsnr: 0115-26-2377

Hafi styrkveitandi í huga ákveðna starfsemi Samhjálpar skal það tilgreint í skýringu.

Gefa á nytjamarkað

Viljir þú gefa eitthvað á nytjamarkaðinn getur þú komið með það á afgreiðslutíma eða haft samband í síma 561 1000.

Samhjálp | Stangarhyl 3a | 110 Reykjavík | Sími: 561 1000 | Netfang: samhjalp@samhjalp.is
© Samhjálp - Allur réttur áskilinn