Í dag eru 39 ár frá því að Samhjálp var formlega stofnuð. Aðdragandinn er falleg saga sem minnir á söguna um miskunnsama Samverjann. Meginmarkmið Samhjálpar er að koma þeim til hjálpar sem lotið hafa í lægra haldi fyrir ógnarvaldi áfengis og annarra vímuefna.
Starfið byrjaði á götunni þar sem gegnið var til þeirra sem lifðu útigangslífi, kropið við hlið þeirra og þeim hjálpað til að verða edrú. Fyrsta starfstöðin var í bílskúr sem Steingrímur fisksali og Kristín kona hans áttu á Sogaveginum og þar fékk Georg Viðar, frelsaður maður, aðstöðu til að hjálpa meðbræðrum sínum. Hann leitaði á náðir Einars Gíslasonar prests Hvítasunnusafnaðarins, sem brást ljúfmannlega við og koma hann því til leiðar ásamt öðru góðu fólki að Hlaðgerðarkot var keypt af Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, sem áður hafði verið þar með barnaheimimli.
Formleg stofnun Samhjálpar var þennan dag 31 janúar á 50. afmælisdegi Einars. Hann gaf allar afmælisgjafir sínar til Samhjálpar. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá þessum tíma og mikið vín hefur líka i runnið af mörgum sómakærum körlum og konum sem átt hafa fyrstu skref sín til frelsis í Hlaðgeðarkoti.
Starf Samhjálpar hefur stækkað og eflst. Meðferðin hefur tekið tekið miklum stakkaskiptum og er meðferðarstarfið nútímalegt sem byggir á hefðbundinni áfengismeðferð og menntuðu starfsfólki. AA fundir og hugmyndafræði AA-samtakanna eru líka ríkur þáttur í meðferðinni.
Samhjálp á gott samstarfi við Velferðarráðuneytið og Reykjavíkurborg. Ásamt Hlaðgerðarkoti rekur Samhjálp fjögur áfangaheimili, Gistiskýlið og Kaffistofuna. Viðkoman hjá Samhjálp er gríðarlega mikil. Í nótt sváfu um 110 manns í rúmum sem Samhjálp bjó um og í dag munu um 100-110 manns njóta matarins á Kaffistofunni. Félagsstarf Samhjálpar í Stangarhyl 3 er líka mjög öflugt bæði hjá U.N.G. á sunnudögum og á Samkomunum sem eru á fimmtudögum. Þá kemur þangað mikill fjöldi karla og kvenna í viðtöl.
Samhjálp á sér hauk í horni sem er Styrktarfélag Samhjálpar. (reikningsnúmer er 101-26-31880, kt 690104-2880). Það sér um blaðaútgáfuna, happdrættið, Nytjamarkaðinn, merkjasölu, dagbókarsölu, hljómdiskasölu og annast hvers kyns fjáraflanir. Nú er merkjasalan að hefjast og hvet ég sem flest til að koma upp í Stangarhyl 3, sækja merki og selja í þágu Samhjálpar.
Nú eru þessi 39 ár að baki. Á komandi ári munum við leita til þjóðarinnar um að hjálpa Samhjálp til þess að komast út úr miklum skuldum og einnig til þess að endurbæta Hlaðgerðarkot. Draumurinn sem við eigum er komast út úr þeirri miklu hættu sem stafar að Samhjálp vegna mikilla fjárhagserfiðleika. Ég heiti á þig lesandi minn góður að leggja Samhjálp lið í þeirri baráttu í lífróðri Samhjálpar.
Með bestu afmæliskveðjum.
Karl V. Matthíasson, framkvæmdastjóri Samhjálpar.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá 09:00 til 15:00.
Nytjamarkaður er opin alla virka daga frá 13:00 til 18:00.
908 5001 til að gefa 1.000 kr.
908 5002 til að gefa 2.000 kr.
908 5003 til að gefa 3.000 kr.
Kennitala: 551173-0389
Reikningsnr: 0115-26-2377
Hafi styrkveitandi í huga ákveðna starfsemi Samhjálpar skal það tilgreint í skýringu.
Viljir þú gefa eitthvað á nytjamarkaðinn getur þú komið með það á afgreiðslutíma eða haft samband í síma 561 1000.
Samhjálp | Stangarhyl 3a | 110 Reykjavík | Sími: 561 1000 | Netfang: samhjalp@samhjalp.is
© Samhjálp - Allur réttur áskilinn