Áfangahúsið Spor

Samhjálp opnaði í april 2009 áfangahúsið Sporið að Vagnhöfða 7 í Reykjavík.  Þar eru herbergi fyrir 17 íbúa, 14 herbergi sem ætluð eru körlum og 3 kvennapláss.  Á Sporinu er sameiginlegt eldhús, bað, þvottahús og setustofa.

Þeir sem koma inn á Sporið eru gjarnan að koma úr meðferð en það er þó ekki skilyrði fyrir búsetu þar, menn verða þó að hafa verið edrú í að minnsta kosti 2.vikur fyrir komuna þangað.

Íbúar Sporsins eru skyldugir til að sækja í "prógram" sem samanstendur af morgunfundum 4x í viku, einni grúppu, mæting á minnst eina samkomu í viku og einn AA fund.  Að auki er íbúum boðið uppá einkaviðtöl eftir þörfum á göngudeild Samhjálpar sem staðsett er í Stangarhyl 3a.

Til að sækja um pláss á Sporinu er hægt að hafa samband við Þóri Haraldsson eða Vilhjálm Svan.

Afgreiðslutími

Skrifstofan er opin alla virka daga frá 09:00 til 15:00.

Nytjamarkaður er opin alla virka daga frá 13:00 til 18:00.

Söfnunarsímar

908 5001 til að gefa 1.000 kr.

908 5002 til að gefa 2.000 kr.

908 5003 til að gefa 3.000 kr.

Bankaupplýsingar

Kennitala: 551173-0389
Reikningsnr: 0115-26-2377

Hafi styrkveitandi í huga ákveðna starfsemi Samhjálpar skal það tilgreint í skýringu.

Gefa á nytjamarkað

Viljir þú gefa eitthvað á nytjamarkaðinn getur þú komið með það á afgreiðslutíma eða haft samband í síma 561 1000.

Samhjálp | Stangarhyl 3a | 110 Reykjavík | Sími: 561 1000 | Netfang: samhjalp@samhjalp.is
© Samhjálp - Allur réttur áskilinn