Stuðningsbýlið M18

Föstudaginn 15. ágúst 2003, opnaði Samhjálp, í samvinnu við Félagsþjónustuna í Reykjavík, heimili fyrir heimilislausa Reykvíkinga. Á heimilinu er pláss fyrir átta einstaklinga og hefur hver sitt eigið herbergi, utan einn sem hefur til umráða litla einstaklings íbúð. Önnur aðstaða er sameiginleg. Heimilið er nokkurskonar áfangaheimili en með miklum stuðningi. Dagvakt starfsmanna er á virkum dögum auk þess sem litið er til með heimilinu utan þess tíma. Markmiðið með heimilinu er að styðja þá einstaklinga til bata, sem ekki hafa náð bata eftir hefðbundnum meðferðarúrræðum.

Til þess að eiga möguleika á búsetu á heimilinu, þarf að sækja um hjá viðkomandi borgarhlutaskrifstofu Velferðarsviðs Reykjavíkur. Sérstakt inngönguteymi sér síðan um forgangsröðun umsókna og úthlutar í samráði við Þóri Haraldsson dagskrárstjóra stuðningsbýla Samhjálpar, en hann er jafnframt yfirmaður heimilisins. Eitt af skilyrðum fyrir inntöku, er að viðkomandi einstaklingur hafi a.m.k. verið edrú í fjórar vikur.

Velferðarsvið Reykjavíkur úthlutar fé til daglegs reksturs en borgin sér um viðhald fasteignarinnar auk húsbúnaðar. Einnig eru heimilismenn í virku sambandi við félagsráðgjafa á vegum borgarinnar. Ásamt því á yfirmaður reglulega fundi og einkaviðtöl við heimilismenn, að öðru leiti sækja þeir ekki, frekar en þeir vilja, aðra dagskrá á vegum Samhjálpar.

Yfirmaður er Þórir Haraldsson dagskrárstjóri.
Sími: 561 1442
Netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpóstabottum, þú þarft að kveikja á JavaScript til að sjá það

Afgreiðslutími

Skrifstofan er opin alla virka daga frá 09:00 til 15:00.

Nytjamarkaður er opin alla virka daga frá 13:00 til 18:00.

Söfnunarsímar

908 5001 til að gefa 1.000 kr.

908 5002 til að gefa 2.000 kr.

908 5003 til að gefa 3.000 kr.

Bankaupplýsingar

Kennitala: 551173-0389
Reikningsnr: 0115-26-2377

Hafi styrkveitandi í huga ákveðna starfsemi Samhjálpar skal það tilgreint í skýringu.

Gefa á nytjamarkað

Viljir þú gefa eitthvað á nytjamarkaðinn getur þú komið með það á afgreiðslutíma eða haft samband í síma 561 1000.

Samhjálp | Stangarhyl 3a | 110 Reykjavík | Sími: 561 1000 | Netfang: samhjalp@samhjalp.is
© Samhjálp - Allur réttur áskilinn