top of page


Taktu kvöldið frá!
Góður matur, skemmtilegur félagsskapur, frábær tónlist og einstakur stuðningur við samborgara þína sameinast í einu kvöldi. Er nokkuð betra? Nei, varla og Kótilettukvöld Samhjálpar sameinar allt þetta og meira til. Okkur langar þess vegna að láta þig vita að Kótilettukvöldið 2026 verður haldið þann 21. október næstkomandi á Hilton Hótel Nordica. Við erum þegar farin að hlakka til og hvetjum ykkur öll til að taka kvöldið frá og koma tilbúin að njóta, gleðjast og gefa af ykkur.


Trúi því að við séum rétt að byrja
Sara Karlsdóttir Í nýjasta Samhjálparblaðinu er fjallað um eftirfylgni eftir meðferð í Hlaðgerðarkoti sem nú er boðið upp á. Þau Sigurður Fossdal og Sara Karlsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafar sögðu frá þessu úrræði og árangrinum af því. Útbúin var aðstaða á skrifstofu Samhjálpar fyrir hópa til að hittast en einnig er sá möguleiki fyrir hendi að taka fólk í einkaviðtöl. Hver var ástæða þess að þið ákváðuð að bjóða fólki sem lokið hefur meðferð í Hlaðgerðarkoti eftirfylgni?


EXIT – leið út úr afbrotum
Í nýjasta Samhjálparblaðinu skrifar Eygló Harðardóttir grein um EXIT verkefni sem miðar að því að hjálpa fólki til að finna leiðir út úr afbrotum og byggja upp líf þegar það kemur út úr fangelsi. Í greininni segir Eygló: „Þegar fólk gengur út úr fangelsi ætti það að vera nýtt upphaf en fyrir marga er það í raun aðeins upphaf nýrrar óvissu. Hugsum okkur tvo einstaklinga sem eru að losna úr fangelsi. Annar þeirra er kona á þrítugsaldri, í fangelsi vegna umfangsmikils fíkniefnas


Ný í stjórn Samhjálpar
Aðalfundur Samhjálpar var haldin í húsnæði Fíladelfíukirkjunnar í Hátúni í gær og þar voru kosin ný í stjórn Samhjálpar Helga Þórinsdóttir læknir og Davíð Örn Sveinbjörnsson lögfræðingur. Þau taka við af Helgu Lind Pálsdóttur og Dóru Vigdísi Vigfúsdóttur er báðar óskuðu eftir að láta af setu í stjórn vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Stjórn og starfsfólk Samhjálpar þakkar Helgu Lind og Dóru Vigdísi innilega fyrir þeirra störf og býður nýtt stjórnarfólk velkomið til starfa.


Við minnum á aðalfund Samhjálpar
Aðalfundur Samhjálpar fer fram 21. apríl klukkan 17:00 í húsnæði Fíladelfíu Hátúni 2, Reykjavík. Dagskrá fundar er eftirfarandi: Kosning fundarstjóra og fundarritara Skýrsla stjórnar Starfsskýrsla undanfarins árs Reikningar lagðir fram til samþykktar Kjör til stjórnar Kosning um endurskoðanda Starfsáætlun 2026 Önnur mál Aðalfundur Samhjálpar fer fram 21. apríl klukkan 17:00 í húsnæði Fíladelfíu Hátúni 2, Reykjavík.


Fólk nær að lyfta grettistaki
Fjölmargir skjólstæðingar Samhjálpar hafa náð góðum árangri í að byggja upp líf sitt að nýju eftir að hafa tekið þátt í endurhæfingarúrræðinu Grettistaki. Um er að ræða úrræði á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og markmið þess er að auka hæfni einstaklinga til að takast á við daglegt líf, hvort sem er í námi eða vinnu. Elín Guðjónsdóttir félagsráðgjafi er verkefnastjóri Grettistaks og hún var beðin að lýsa því hvernig úrræðið væri uppbyggt. „Grettistakið


„Tónlistin bjargaði mér“
Elvar Bragason fór brotinn út í lífið. Hann var lagður í einelti alla grunnskólagönguna heima á Húsavík og leið alltaf illa. Hann gat ekki talað um líðan sína við neinn en þegar hann kynntist áfengi, þrettán ára gamall, gaf það lausn frá vanlíðaninni um stund. Elvar þróaði með sér fíkn og reyndi oft að ná tökum á sjúkdómnum án þess að ná árangri. Árið 2003 varð vendipunktur í lífi hans en þá gekk hann inn í Hlaðgerðarkot og fann leið til að fy


Aðalfundur Samhjálpar
Aðalfundur Samhjálpar fer fram 21. apríl klukkan 17:00 í húsnæði Fíladelfíu Hátúni 2, Reykjavík. Dagskrá fundar er eftirfarandi: Kosning fundarstjóra og fundarritara Skýrsla stjórnar Starfsskýrsla undanfarins árs Reikningar lagðir fram til samþykktar Kjör til stjórnar Kosning um endurskoðanda Starfsáætlun 2026 Önnur mál Aðalfundur Samhjálpar fer fram 21. apríl klukkan 17:00 í húsnæði Fíladelfíu Hátúni 2, Reykjavík.


Mannauður Kaffistofunnar í nýju Samhjálparblað
Samhjálparblaðið er komið út. Að þessu sinni er mannauður Kaffistofunnar í forgrunni og viðtöl við hluta starfsfólksins mynda forsíðuumfjöllun blaðsins. Að auki er viðtal við Elvar Bragason stofnanda Tónasmiðjunnar. Hann fór brotinn út í lífið eftir langvarandi einelti í heimabæ hans Húsavík en tókst að finna frelsi í trúnni og tónlistinni. Hann hjálpar nú öðrum að finna sína leið að lífshamingjunni. Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar áhrifamikla hugvekju um líðan manneskju í
Allar Fréttir
bottom of page
