Að byrgja brunninn
- steingerdur0
- Apr 22
- 2 min read

Allir þekkja máltæki að byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í hann og algengt er að heyra talað um gildi forvarna og nauðsyn þess seinka því að börn og unglingar fari að neyta áfengis og jafnvel koma í veg fyrir að þau nokkurn tíma reyni vímuefni af einhverju tagi. Menn eru sammála um gildi forvarna en gera oft kröfu um gríðarlegan árangur. Ávinning af slíku starfi er erfitt að mæla en forvarnastarf getur verið fjölbreytt og snúið að fleiru en boðum, bönnum eða fræðslu um vímuefni.
Náum áttum er fræðslu- og forvarnahópur sem skipuleggur morgunverðarfundi um ýmis mál er varða forvarnir og velferð barna og ungmenna. Hópurinn hefur verið starfandi frá árinu 2000 en hann varð til í kjölfar umræðu um vímuefni og forvarnir og innan verkefnisins Ísland án eiturlyfja. Árið 2002 vaknaði hugmynd um að efla þyrfti samstarf um upplýsinga- og fræðslustarf um vímuvarnir. Síðasti morgunverðarfundur hópsins snerist um einmanaleika ungs fólks.
Á fundinum kom fram að börn og ungmenni geta upplifað sig utangarðs og ein þrátt fyrir að þau séu hluti af hópi. Skjánotkun og aukin samskipti í tölvunni virðist ýta undir þær tilfinningar fremur en að sameina börn í hópum. Oddný Sturludóttir, doktorsnemi á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, hélt erindi um hvernig börn geta verið sítengd og einmana. Hún benti einnig á leiðir til að tengja saman þau kerfi er vinna að farsæld barna á Íslandi og hvernig þau geta unnið saman á skapandi hátt að því að bæta líðan þeirra. Þrátt fyrir að Ísland sé enn í þriðja sæti á lista yfir hamingjusömustu þjóðir heims er margt sem bendir til að börnunum okkar líði verr en áður.
Næst töluðu þau Arnar Helgi Magnússon, ráðgjafi í barnateymi Árborgar og virkniráðgjafi hjá Elju virkniráðgjöf, og Thelma Sif Kristjánsdóttir, ráðgjafi hjá Elju virkniráðgjöf, og fræddu fundargesti um Virkniráðgjöf - skref til breytinga, verkefni á vegum Árborgar sem gefið hefur góða raun og komið mörgum unglingum og ungmennum sem dottið hafa út úr námi og vinnu í virkni aftur. Að lokum stigu í pontu þau Dagur Jónsson og París Anna Bergmann úr ráðgjafahópi Umboðsmanns barna og lýstu reynslu barna og mismunandi upplifunum af þeim leiðum sem standa þeim opnar í samfélaginu. Það var afar fróðlegt að hlusta á þau og erindi þeirra var mjög vel útfært og framsetningin skelegg.
En hvers vegna er svo mikilvægt að koma í veg fyrir einmanaleika barna og ungmenna? Jú, einmanaleiki og jaðarsetning er liður í því að börn byrji neyslu vímuefna. Því betur sem þau tengjast fjölskyldu sinni, samfélagi og nærumhverfi því minni líkur eru á að þau neyti vímuefna. Að finna leiðir til að skapa börnum vellíðan, tengja þau saman á heilbrigðan og góðan hátt í margvíslegri virkni er ein besta forvörn sem um getur.
Komentáře