top of page

Breytt sjónarhorn - getur öllu breytt



Það er auðvelt að festast í hjólförum þráhyggju eða viðjum vondra lífsvenja. Þá reynist það oft þrautin þyngri að losa sig. Menn spóla og grafast dýpra í stað þess að komast upp og rétt eins og þegar bíll festist í skafli að vetri til þarf stundum einhvern öflugan trukk með tóg til að draga þá upp. Einkenni þess að sitja fastur er að menn sjá ekki heildarmyndina og iðulega jafnvel ekki það sem er rétt fyrir framan nefið á þeim. Besta ráðið til að komast út úr slíkum aðstæðum er að breyta um sjónarhorn, gera eitthvað öðruvísi.


Í nútímaveröld hefur sjóndeildarhringur fólks þrengst þrátt fyrir að heimurinn standi því opinn bæði gegnum ferðalög og endalausar upplýsingar veraldarvefsins. Vegna þess hve fjölbreytileg afþreying er í boði hefur einbeitingartími fólks styst. Það þarf mikið til að ná og halda athygli manna. Allir hafa aðgang að tækjum og tólum og geta skapað eigin miðla. Sumir ná vinsældum en öðrum tekst miður. Fyrirtæki reyna það sama, og upplýsingar um neytendur ganga kaupum og sölum. Kapphlaupið um athygli manna harðnar því stöðugt og áreitið eykst daglega. Látlaust bankar einhver eða eitthvað upp á og leitast við að vekja áhuga og halda okkur föngnum litla stund. Áreitið er stöðugt og áleitið.


Allt snýst líka um að gera eitthvað, vera eitthvað og helst að sýna það öðrum. Það er ekki hægt að njóta þess að liggja í sólbaði á notalegri sandströnd án þess að taka myndir af tásunum og deila þeim. Matur er varla fyrr borinn á borð en ótal myndir af réttinum á disknum eru farnar á flug og fleira og fleira. Allt á þetta að sýna að við lifum innihaldsríku lífi. Það kostar mikla orku og vinnu að halda uppi svona lífsstíl og gildi þess að gera ekki neitt virðist flestum gleymt.


Afköstin eru ekki allt


Allt of algengt er að fólk sé metið út frá afköstum, afrekum eða stöðu. Vegna þess hve upptekin við erum af ytra áreiti og því sem aðrir eru að gera gleymist að huga að sínu innra lífi, okkar nánustu fjölskyldu, fólkinu sem situr við hliðina á okkur. Til þess að breyta þessu þarf að skipta um sjónarhorn, gera hlutina öðruvísi. Það eitt að breyta ofurlítið út frá vananum getur valdið því að dekkin hætti að spóla og fólk færist nær því að breyta lífi sínu, rjúfa vítahringinn.

Í sjálfsævisögu sinni Midnight Express segir Billy Hayes sögu sína. Hann var bandarískur háskólastúdent sem var handtekinn í Tyrklandi fyrir að reyna að smygla 2,4 kílóum af hassi þaðan til Bandaríkjanna. Hann sat inni í fimm ár og fékk lítinn stuðning frá eigin stjórnvöldum, þannig að þegar árin liðu eitt af öðru missti hann vonina. Á hverjum degi fengu fangar að fara út í þröngan fangelsisgarð og ganga þar í klukkustund. Garðurinn var það lítill að þeir urðu að ganga hring eftir hring hver á eftir öðrum. Dag nokkurn greip Billy til þess ráðs að snúa sér við og ganga rangsælis, á móti samföngum sínum. Þetta varð upphafið að því að hann fékk kraft til að breyta aðstæðum sínum. Hann flúði úr fangelsinu og komst til Grikklands og þaðan heim.


Þetta er gott dæmi um hvernig lítil breyting getur leitt til stórra kúvendinga. Hvernig væri að einsetja sér að breyta einni slæmri venju á hverjum degi? Prófa að borða hollari morgunverð, ganga án markmiðs eða áfangastaðar, ganga fram og til baka í stað þess að fara hring? Nú, eða klæðast litríkum fötum í stað svartra, grárra eða brúnna? Það gæti líka verið þess virði að einsetja sér að líta upp og horfa á efstu hæðir bygginga í stað þess að beina sjónum sínum að götuhæðunum eingöngu. Veita athygli einhverju sem aldrei hefur vakið áhuga okkar fram að því, til dæmis fuglum. Þeir eru merkileg dýr. Sumir þeirra víðförlir, aðrir staðfuglar en allir eiga það sameiginlegt að hafa mikið fyrir lífinu og vera merkilega snjallir við að bjarga sér.

Allt í kringum okkur er að finna athyglisverð smáatriði og ef við veitum fólkinu í kringum okkur alla okkar athygli um tíma er líka hægt að komast að mörgu, öðlast betri skilning og bæta tengsl. Það eina sem við þörfnumst er að finna innra með okkur, hjá okkur og í kringum okkur. Allt sem þarf er að breyta því hvernig við horfum á hlutina.

 

 

Comments


bottom of page