Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga sendi nýverið frá sér áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar að takmarka sölu á áfengi og standa þannig vörð um lýðheilsu þjóðarinnar.
Í tilkynningu félagsins segir að tilefni áskoruninnar sé „óheillaþróunar á sölu áfengis“. Þá segir ennfremur: „Áfengi er ekki venjuleg neysluvara. Neysla hennar hefur skaðleg áhrif á heilsu og ekki eru nein þekkt viðmið um skaðlausa notkun hennar,“ segir í tilkynningunni. Áfengi sé einn af fjórum algengustu áhættuþáttum fyrir langvinnum sjúkdómum, hafi áhrif á myndun ýmissa tegunda krabbameina, sykursýki, hjartasjúkdóma, skorpulifur og heilablóðfalls.
Fjölmargar alþjóðlegar rannsóknir sýni að aukið aðgengi að áfengi hafi í för með sér aukna notkun þess, sem leiði til aukinna heilbrigðis- og félagslegra vandamála, „með tilheyrandi kostnaði og þjáningu fyrir samfélagið.“
Minnt er á að í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar segir að stuðlað verði að heilbrigðu samfélagi og það séu sameiginlegir hagsmunir að lögð sé áhersla á lýðheilsu, forvarnir og geðheilbrigðismál. Að auki er vísað í lýðheilsustefnu Alþingis til árs 2030, þar sem stefnt er að því að Íslendingar verði meðal fremstu þjóða í lýðheilsustarfi sem byggist á bestu vísindaþekkingu og reynslu.
Spá versnandi lýðheilsu
Bent er á að núverandi fyrirkomulag þar sem hægt sé að kaupa áfengi utan afgreiðslutíma verslana ÁTVR og fá það sent heim til sín á skömmum tíma skapi verulega aukningu á aðgengi fólks að áfengi.
„Aukið aðgengi að áfengi er ekki í samræmi við stjórnarsáttmála né lýðheilsusjónarmið þau sem sett hafa verið,“ segir í tilkynningunni.
Hjúkrunarfræðingar sjá í starfi sínu afleiðingar aukinnar áfengisneyslu og allar rannsóknir sýna að aukin drykkja veldur versnandi lýðheilsu og auknu álagi á heilbrigðiskerfið. Hjúkrunarfræðingar minna á að viðamestu hlutverk þeirra eru heilsuvernd, heilsuefling og forvarnir
„Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er alfarið mótfallið breytingum sem hafa í för með sér aukið aðgengi að áfengi. Það mun leiða til aukinnar heildarneyslu sem er með öllu andstætt bættri lýðheilsu þjóðarinnar. Ef núverandi fyrirkomulag heldur áfram án aðgerða eða verður lögfest, þá munum við sjá gríðarlega afturför í baráttunni fyrir bættri lýðheilsu.“
Að lokum segir í tilkynningunni:
„Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga skorar því á Alþingi að standa vörð um lýðheilsustefnu og heilbrigðisstefnu til 2030, ríkisstjórnina að halda sig við lýðheilsumarkmið stjórnarsáttmálans og standa þannig með heilsu og velferð þjóðarinnar,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Comments