Hvað geta foreldrar gert til að sporna gegn unglingadrykkju?
- steingerdur0
- Apr 29
- 1 min read

Drykkja unglinga er að aukast hér á landi eftir að með samstilltu átaki tókst að minnka hana verulega. Þetta er öfugþróun og nauðsynlegt fyrir foreldrar að vera á varðbergi og styðja börn sín í að velja helst af öllu áfengislausan lífstíl. Rannsóknir hafa sýnt að því betra samband sem börn hafa við foreldra sína, því ólíklegra er að þau leiðist út í vímuefnaneyslu. Meðal ráða sem gjarnan eru gefin til að byggja upp gott samband við börnin eru eftirfarandi:
1. Talaðu við börnin þín og segðu þeim frá þeim hættum sem eru samfara vímuefnaneyslu.
2. Hlustaðu á það sem þau hafa fram að færa. Oft nota börn tækifærið þegar umræða um vímuefni fer af stað til að segja frá ef þau eru undir þrýstingi eða ef einhver erfið atvik hafa komið upp í vinahópnum. Hlustaðu einnig eftir viðhorfum þeirra til fíkniefna og vímu. Reyndu einnig að styðja þau á allan máta ef þau hafa orðið fyrir jafningjaþrýstingi.
3. Vertu góð fyrirmynd. Orðtakið að það læri börn sem fyrir þeim er haft er í fullu gildi. Foreldrar marka brautina í viðhorfum barna sinna til neyslu og þess hvers konar neyslumynstur eru ásættanleg.
4. Ræktaðu sambandið við börnin þín. Því sterkari sem böndin eru í fjölskyldunni, því minni líkur eru á að börn leiðist út í vímuefnaneyslu.
Comments