top of page

Ný í stjórn Samhjálpar

  • Apr 22
  • 1 min read

Aðalfundur Samhjálpar var haldin í húsnæði Fíladelfíukirkjunnar í Hátúni í gær og þar voru kosin ný í stjórn Samhjálpar Helga Þórinsdóttir læknir og Davíð Örn Sveinbjörnsson lögfræðingur. Þau taka við af Helgu Lind Pálsdóttur og Dóru Vigdísi Vigfúsdóttur er báðar óskuðu eftir að láta af setu í stjórn vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Stjórn og starfsfólk Samhjálpar þakkar Helgu Lind og Dóru Vigdísi innilega fyrir þeirra störf og býður nýtt stjórnarfólk velkomið til starfa.

Comments


bottom of page