top of page

Snjókornið er skraut sem gefur af sér


Vilhjálmur Sturla Eiríksson, framkvæmdastjóri sölusviðs hjá A4, Valgerður Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá A4, Sandra Harðardóttir verkefnastjóri fjáröflunar hjá Samhjálp og Sigrún Ásta Einarsdóttir framkvæmdastjóri A4 þegar styrkurinn var afhentur.
Vilhjálmur Sturla Eiríksson, framkvæmdastjóri sölusviðs hjá A4, Valgerður Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá A4, Sandra Harðardóttir verkefnastjóri fjáröflunar hjá Samhjálp og Sigrún Ásta Einarsdóttir framkvæmdastjóri A4 þegar styrkurinn var afhentur.

 Snjókornið 2024 var til sölu í verslunum A4 fyrir jólin og skilaði 2.2 milljónum króna til Samhjálpar. A4 hefur frá árinu 2019 safnað öllu plasti sem fellur til hjá fyrirtækinu yfir árið og fengið Plastplan, sprotafyrirtæki í hönnun og plastendurvinnslu til að endurvinna það í formi nytjahluta. Í fyrra var svo hannað snjókorn og gefið starfsfólki. Í ár var þetta fallega jólaskraut síðan verið virkjað til að aðstoða og gleðja og að þessu sinni rann söluandvirðið allt til Samhjálpar.


„Við erum þakklát fyrir samstarfið við A4 og þeirra framlag og þátttöku almennings í þessu umhverfisvæna og skemmtilega verkefni,“ segir Sandra Harðardóttir verkefnastjóri fjáröflunar hjá Samhjálp. „Þetta er hvetjandi og ánægjulegt og gefur fólki færi á að sýna hlýhug í verki.“


Hugmyndin að Snjókorninu hafa kviknaði þegar Plastplan var fengið til að útbúa pakkaskraut til starfsmanna A4 fyrir jólin árið 2019. Búið var til snjókorn úr plasti er féll til hjá A4 yfir árið oen Plastplan býr yfir þekkingu og tækjabúnaði til að endurvinna plast á margvíslega vegu. Þetta fallega pakkasktau vakti mikla lukku og margir starfsmenn sögðust hafa hengt skrautið á jólatréð hjá sér. Þá stakk Vala Magnúsdóttir, verkefnastjór hjá A4 upp á því að fyrirtækið þróaði þessa hugmynd frekar og seldi almenningi skrautið og ágóðinn færi til styrktar góðu málefni.

Við þetta má bæta þeirri fallegu hugsun að ekkert snjókorn er eins ekkert frekar en mannfólkið. Við erum öll einstök. Snjókorn er einnig táknrænt fyrir skjólstæðinga Samhjálpar sem oft þekkja kuldann of vel. A4 ætlar að halda þessu góða starfi áfram og sjá fyrir sér að fólk geti safnað Snjókornum og notað þau sem pakkaskraut, til að hengja á jólatréð, á grein eða í glugga eins og óróa.


Nú þegar verkefninu er lokið þetta árið er ljóst að landsmenn hafa heillast af snjókornunum og sameinast um að gleðja og styðja skjólstæðinga Samhjálpar.

 

Comments


bottom of page