Stýrihópur um áfengis- og vímuefnameðferðarkerfið
- steingerdur0
- Apr 1
- 1 min read

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað stýrihóp með fulltrúum stofnana og félagasamtaka sem sinna áfengis- og vímuefnameðferð til að efla samskipti og samhæfingu milli þjónustuveitenda og stuðla að tímanlegri þjónustu fyrir notendur. Skipun hópsins er í samræmi við tillögur erlends sérfræðings sem falið var að gera stöðumat á áfengis og vímuefnameðferð á Íslandi og skilaði ráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum í nóvember síðastliðnum.
Stýrihópnum er ætlað að leiða vinnu til að skapa sameiginlegan skilning á hlutverki og ábyrgð aðila sem og veita aðilum vettvang til að vinna að lausnum, samhæfingu og þróun þjónustu. Til þess getur stýrihópurinn meðal annars boðið til vinnustofu hagsmunaaðila eða myndað vinnuhópa.
Stýrihópinn skipa:
Helga Sif Friðjónsdóttir, án tilnefningar, formaður
Signý Guðbjartsdóttir, tilnefnd af Samhjálp
Bjarni Össurarson, tilnefndur af geðsviði Landspítala
Kristín Davíðsdóttir, tilnefnd af bráðasviði Landspítala
Hildur Svavarsdóttir, tilnefnd af heilsugæsluþjónustu heilbrigðisstofnana
Anna Hildur Guðmundsdóttir, tilnefnd af SÁÁ
Gísli Kort Kristófersson, tilnefndur af Geðráði
Elías Guðmundsson, tilnefndur af Krýsuvík
Sigríður Jónsdóttir, án tilnefningar
Starfshópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 24. mars 2025 og skal skila skýrslu til ráðherra fyrir lok mars 2026.
コメント