Umsóknir um meðferð í Hlaðgerðarkoti koma víða að. Þær berast frá einkaheimilum, lögreglu, áfengisdeildum sjúkrahúsa, félagsþjónustu og prestum, svo eitthvað sé nefnt. Þeir sem sækja um eru undir mismundandi kringumstæðum; oftast liggur að baki löng og ströng neysla vímuefna.
Meðferðarstarfið í Hlaðgerðarkoti hefir verið í sífelldri þróun frá upphafi. Grundvöllurinn er þó ætíð hinn sami: kristin trú í framkvæmd. Tvær áherslur eru lagðar í meðferðarstarfinu. Annars vegar er um að ræða hefðbundna fræðslu um sjúkdóminn alkóhólisma og læknisfræðilegar lausnir hans, hins vegar er um að ræða fræðslu um kristna trúariðkun með félagslega endurhæfingu að markmiði. Sérstök áhersla er lögð á trúarlegan bakhjarl 12-sporanna innan AA með skírskotun til Biblíunnar.
Sjúklingum er kennt að fást við sjúkdóm sinn út frá læknisfræðilegum lausnum hans auk þess sem frætt er um einkenni og afleiðingar. Í trúnni finnur einstaklingurinn styrk til þess að fást við þau verkefni sem bíða þeirra sem eru að fást við áfengis- og vímuefnafíkn og hún veitir þeim von sem áður álitu sig enga von hafa. Trúin byggir þó alltaf á persónulegu vali einstaklingsins og kjósi sjúklingur að tileinka sér ekki trúarleg viðhorf hefur það ekki áhrif á meðferðina.
Segja má að meðferðin í Hlaðgerðarkoti skiptist í eftirtalda hluta, byggða á fyrstu þremur sporum AA samtakanna:
1. Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart áfengi og að við gætum ekki lengur stjórnað eigin lífi.
2. Við fórum að trúa að máttur okkur æðri gæti gert okkur andlega heilbrigð að nýju.
3. Við tókum þá ákvörðun að fela líf okkar og vilja umsjá Guðs,samkvæmt skilningi okkar á honum.
Afeitrun og greining
Afeitrun hefst við innlögn. Sumir þurfa þó ekki á henni að halda þar sem heilsa þeirra er bærileg eða þeir hafa lokið henni á öðrum áfengisstofnunum þegar þeir koma í Hlaðgerðarkot.
Afeitrun byggist á læknisfræðilegu mati á ástandi sjúklings. Læknir stofnunarinnar ákveður lyfjameðferð við fráhvarfseinkennum og fylgist með framgangi hennar. Venjulega tekur afeitrun 7 til 10 daga. Á þessu stigi er sjúklingi kynnt meðferðarstarf Samhjálpar, í hverju það felst og hver meginmarkmið þess eru. Auk þess er fjallað um nokkur atriði í tengslum við sjúkdóminn alkóhólisma. Þó er gengið út frá því að sjúklingurinn hafi þegar hlotið grundvallarfræðslu um eðli sjúkdómsins, en liðlega 95% þeirra sem leggjast inn á Hlaðgerðarkot hafa verið í meðferð annarsstaðar. Á meðan á afeitrun stendur stundar sjúklingurinn, á meðan hann hefur ekki heilsu til, ekki aðra dagskrá en þá sem snýr að viðtölum við ráðgjafa. Ráðgjafi metur hvenær sjúklingur hefur þátttöku í almennri dagskrá.
Greining fer fram á fyrstu 7-10 dögunum. Í henni er metin meðferðarleg þörf einstaklingsins en einnig er félagsleg staða metin.
Meðferð
Meðferð hefst á því að ráðgjafi leitast við að setja sig inn í aðstæður skjólstæðinga sinna eftir því sem við verður komið í einkaviðtölum. Með viðtölunum er reynt að mæta bæði ytri og innri þörfum skjólstæðingsins. Ljóst er að vandi áfengis- og vímuefnasjúklinga er margþættur, þar sem taka verður tillit til líkamlegra, andlegra og félagslegra þátta. Er fram líða stundir byggjast viðtölin á úttekt verkefna sem skjólstæðingurinn er að takast á við bæði í hópmeðferð og eins í fyrirlestrum.
Hópmeðferð
Í hópmeðferð vinna saman allt að tíu einstaklingar með ráðgjafa. Verkefnin sem unnin eru í þessum hópum eru margskonar. Þau eiga þó öll það sameiginlegt að knýja fram virka sjálfsskoðun. Eftirtalin stef má finna í dagskrá þessara hópa: Einmanaleiki og einangrun, meðferð, reiði, sjálfsskoðun, sjálfsvirðing, bati, ásamt skipulegri útskriftaráætlun. Margvígslega uppörvun til þeirra sem sjúkir eru, má einnig finna í Ritningunni. Þegar slíku er miðlað, byggir það upp von og trú á að bata verði náð með hjálp æðri máttar.
Fyrirlestrar/AA
Fyrirlestrar fara fram fimm sinnum í viku þar sem tekist er á við sjúkdómseinkenni eins og afneitun, einangrun, einmanakennd, kvíða, ótta, reiði og svo framvegis og efnið jafnframt, eftir atvikum, skoðað í textum Biblíunnar. Jafnframt þessu fara fram fimm AA fundir í viku. Á tveimur þeirra stíga skjólstæðingar sjálfir í pontu og ræða viðfangsefni sín í meðferðinni og eigin afstöðu og reynslu í áheyrn meðferðarsystkina sinna og ráðgjafa. Þrír fundanna er í umsjón utanaðkomandi gesta úr AA samtökunum, á einum þeirra er lestur úr AA bókinni.
Sérhver virkur dagur í meðferðarstarfi Hlaðgerðarkots hefst á samlestri heimilismanna á völdu efni úr Ritningunni. Tilgangur þessa dagskrárliðs er tvíþættur: Með lestrinum öðlast skjólstæðingarnir mikilvæga þjálfun í að tjá sig, sem er nauðsynleg forsenda bata þeirra en flestum reynist það allerfitt í fyrstu. Hinn megintilgangurinn felst í innihaldi þess sem lesið er. Leitast er við að gefa mönnum nokkra innsýn í helstu grundvallaratriði kristinnar trúar, samhliða sjálfsskoðun og sjálfsmati, uppgjöri og endurnýjun.
Hvers vegna Biblían en ekki einhver önnur bók? Samkvæmt tölum Hagstofunnar má gera ráð fyrir að allt að 94% Íslendinga játi kristna trú. Biblían er helsta trúarrit kristinna og án nokkurs vafa útbreiddasta bók á Íslandi. Textar Biblíunnar eru af öllum þeim, sem fordómalaust lesa texta hennar, viðurkennd sem stórfenglegt bókmenntaverk með afar sterkan siðferðisboðskap, enda byggja Vesturlönd á þeirri siðfræði sem birtist á síðum hennar. Þeir sem koma til meðferðar í Hlaðgerðarkoti vita af trúarlegu ívafi meðferðarinnar og margir þeirra kjósa einmitt meðferðina þess vegna. Að þessu sögðu er mjög eðlilegt að notast sé við texta Ritningarinnar, frekar en aðra texta.
Helgihald
Um helgihald í Hlaðgerðarkoti er það að segja, að áhersla er lögð á bæn, kyrrð og íhugun. Í bæninni finnur alkóhólistinn farveg fyrir tjáninguna, sem er svo mikilvægur þáttur í bata hans. Bæna- og kyrrðarstundir eru átta í hverri viku. Markmið bænastundanna er að aðstoða hinn sjúka við að skilja og meta gildi bænalífsins. Í bæninni lærir hann að tjá raunverulegar tilfinningar sínar opinskátt frammi fyrir Guði og samvistmönnum sínum. Umfram allt lærir hann að beygja hug sinn og hjarta og játa sig sigraðan í baráttunni við Bakkus. ,,Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart áfengi og að við gætum ekki lengur stjórnað eigin lífi." Fyrsta reynsluspor AA-samtakanna.
Árið 1989 var kapella tekin í notkun í Hlaðgerðarkoti sem bætti starfsaðstöðuna til muna. Þar fer nú helgihaldið fram, auk þess sem kapellan stendur heimilismönnum opin alla daga vikunnar til samveru og/eða einveru.
Áskorun
Eftir að hefðbundinni 6 vikna meðferð lýkur, er í samráði við ráðgjafa, í boði meðferðarleið sem kölluð er Áskorun og er hún sérstaklega ætluð endurkomufólki. Þá er farið í meiri verkefnavinnu og leitast við að hafa meðferðina sem mest einstaklingsbundna. Áfram er byggt á grúppuvinnu, viðtölum og fyrirlestrum en meiri áhersla er lögð á úrvinnslu félagslegrar stöðu. Samskipti við fjölskyldu eru oft mjög brotin, því er lögð áhersla á eflingu fjölskyldutengsla, m.a. með fjölskylduviðtölum en auk þess fær fólk að fara heim í dagsleyfi og síðan á síðustu metrum meðferðarinnar jafnvel gefið leyfi til að gista eina nótt og/eða fara í helgarleyfi. Allt með það í huga að aðlaga sjúklinginn og fjölskyldu hans að nýju lífsmynstri, þessu geta fylgt miklar tilfinningasveiflur og því nauðsynlegt að aðlaga suma með þessum hætti. Auk þessa er mælt með viðtölum á göngudeild eftir útskrift. Sumir útskrifast í áfangaheimili Samhjálpar og/eða önnur áfangahús.
Útskriftaráætlun
Áður en skjólstæðingur lýkur meðferð í Hlaðgerðarkoti, gerir hann, í samvinnu með ráðgjafa, raunhæfa útskriftaráætlun fyrir sjálfan sig. Eftirmeðferðarstarf Samhjálpar er lagt til grundvallar þeirri áætlun, ásamt ástundun AA funda og/eða önnur þau úrræði sem styðja alkóhólista að byggja upp varanlegt bindindi.
Hjálparstarf Samhjálpar byggist allt á einni forsendu: kristinni trú í framkvæmd. Þessi frumregla er höfð á oddi þegar lagður er grunnur að áframhaldandi bata skjólstæðings eftir meðferð. Trúin er aðferð til að takast á við lífið, lífsskoðun og lífsafstaða sem hjálpar mönnum að fást við sjálfa sig. Þannig getur hún stuðlað að jafnvægi og þroska. Boðskapur Jesú Krists verður trúuðum áfengissjúklingi leiðarljós í hinu daglega amstri og byggir upp jafnvægi, sem gerir honum kleift að komast yfir fráhvörf eða síðhvörf og bregðast við ytri vandamálum án þess að bugast.
Til þess að fræðast um eftirmeðferðarstarf Samhjálpar í Reykjavík, lesið þá um göngudeildina, áfangahúsin og félagsmiðstöðina Háborg!
Ráðgjafar
Allir starfandi ráðgjafar í Hlaðgerðarkoti hafa menntun vímuefnaráðgjafa og hafa staðist próf hinna virtu alþjóðlegu samtaka IC&RC, eða International Certification & Reciprocity Consortium Alcohol & Other Drug Abuse Inc. Ráðgjafanemum er gert að stunda nám við Ráðgjafaskóla Íslands. Ráðgjafar eiga reglulega handleiðslufundi með sálfræðimenntuðum ráðgjafa auk þess að eiga fundi/samtöl við lækni Hlaðgerðarkots eftir þörfum. Ráðgjafar, sem og aðrir starfsmenn Samhjálpar, starfa eftir ströngum siðareglum.
Ráðgjafaskólinn
Námsefni Ráðgjafarskóla Íslands er viðurkennt af alþjóðlegu fagráði á sviði áfengis- og vímuefnaráðgjafar (International Certification & Reciprocity Consortium – IC&RC). Þetta alþjóðlega fagráð viðurkennir nú nám áfengis- og vímuefnaráðgjafa á þessum grunni í öllum ríkjum Bandaríkjanna auk tuttugu öðrum löndum. Nemendur Ráðgjafarskóla Íslands öðlast að loknu náminu og eftir þriggja ára starf undir handleiðslu rétt til þess að þreyta sérstakt próf sem viðurkennt er af IC&RC og standist þeir það fá þeir viðurkenningu fagráðsins sem áfengis- og vímuefnaráðgjafar. Starf sitt þurfa nemendur að hafa innt af hendi á heilbrigðisstofnun þar sem þverfaglegt teymi undir faglegri handleiðslu vinnur að áfengis- og vímuefnameðferð.
Það skal tekið fram að Ráðgjafaskóli Íslands er sjálfstæð stofnun. Skólastjóri hans er Stefán Jóhannsson MA í áfengis- og vímuefnaráðgjöf og fjölskyldumeðferð. Sími Ráðgjafaskólans er 553 8800.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá 09:00 til 15:00.
Nytjamarkaður er opin alla virka daga frá 13:00 til 18:00.
908 5001 til að gefa 1.000 kr.
908 5002 til að gefa 2.000 kr.
908 5003 til að gefa 3.000 kr.
Kennitala: 551173-0389
Reikningsnr: 0115-26-2377
Hafi styrkveitandi í huga ákveðna starfsemi Samhjálpar skal það tilgreint í skýringu.
Viljir þú gefa eitthvað á nytjamarkaðinn getur þú komið með það á afgreiðslutíma eða haft samband í síma 561 1000.
Samhjálp | Stangarhyl 3a | 110 Reykjavík | Sími: 561 1000 | Netfang: samhjalp@samhjalp.is
© Samhjálp - Allur réttur áskilinn