Nýtt upphaf Kaffistofu Samhjálpar styrkt
- 2 days ago
- 1 min read

Samhjálp var í hópi þeirra samtaka er hluti rekstrarstuðning frá félag- og húsnæðismálaráðuneyti í gær. Styrkurinn er veittur til verkefnisins Kaffistofa Samhjálpar- Nýtt upphaf. Um er að ræða 10.000.000 kr. og mun þetta koma sér vel við uppbyggingu og breytingar á nýju húsnæði Kaffistofunnar. Við hjá Samhjálp eru þakklát fyrir þetta ómetanlega liðsinni og hlökkum til að takast á við verkefnin sem bíða.
Í fréttatilkynningu frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu segir Ragnar Þór Ingólfsson „Sú þjónusta og sá stuðningur sem veittur er innan frjálsra félagasamtaka skiptir samfélagið verulegu máli og er afar mikilvæg viðbót við velferðarkerfið okkar. Með nánum tengslum við ykkar fólk hafið þið jafnframt einstaka innsýn í stöðu samfélagsins hverju sinni og þið eruð oftar en ekki fyrst til að sjá hvar áskoranirnar liggja og hvar skórinn kreppir.“Ráðherra benti auk þess á að í starfsemi félagasamtaka yrðu oft til nýjar hugmyndir og lausnir sem mikilvægt væri að fá tækifæri til að þróa áfram. „Velferðarstyrkirnir geta því haft mikla þýðingu fyrir félagasamtök og gefur þeim tækifæri til þess að efla starf sitt og þróa ný verkefni og leiðir til þess að styðja sem best við okkar viðkvæmustu hópa og í takt við þróun og breytingar sem sífellt eiga sér stað í samfélaginu,“ sagði hann.




Comments