Áframhaldandi samstarf um rekstur áfangaheimilis
- steingerdur0
- 1 hour ago
- 1 min read

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs skrifuðu nýlega undir samning um áframhaldandi rekstur á áfangaheimili við Dalbrekku í Kópavogi. Samstarf Samhjálpar við Kópavogsbæ hefur verið ákaflega farsælt og nýr samningur því fagnaðarefni.
Áfangaheimilið tók til starfa í loks árs 2017. Þar eru átta rúmgóð einstaklingsherbergi og sameiginleg aðstaða íbúa til matseldar og heimilislegrar samveru. Dalbrekka er hugsað sem tímabundið heimili þar sem íbúar fá einstaklingsmiðaða þjónustu sem felur í sér stuðning, leiðsögn, kennslu og eftirfylgd til að ástunda edrúmennsku, byggja upp bata, koma á rútínu í daglegu lífi og efla færni og getu til að takast á verkefni hvers dags. Langtíma markmiðið er að íbúar tileinki sér heilbrigðari lífsstíl, öðlist færni til sjálfstæðrar búsetu og auki færni sína til þátttöku í venjubundnu lífi með virkni, launuðu starfi eða námi. Heimilismenn eru í virku sambandi við félagsráðgjafa á vegum velferðarsviðs Kópavogsbæjar og hefur hann reglubundna viðveru á heimilinu. Starfsfólk Samhjálpar sér hins vegar um annan rekstur heimilisins, heldur fundi með íbúum og veitir þeim stuðning í daglegum verkefnum.
Nýr samningur gildir til ársloka 2027.




Comments