top of page

 Auðveldari innkaup, aukin drykkja

  • 1 day ago
  • 2 min read

Elías Blöndal Guðjónsson eigandi vefverslunar með áfengi og Lára G. Sigurðardóttir læknir og doktor í lýðheilsuvísindum tókust á í Kastljósi síðastliðinn föstudag. Þar fullyrti Elías að betra væri að fela einkaaðilum smásölu áfengis og leggja af ríkiseinokunina. Þrátt fyrir að Lára benti á að ótal rannsóknir sýndu fram á að frá lýðheilsusjónarmiði væri svo alls ekki.


Aþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO hefur margoft lagt fram gögn og sýnt fram á að sú ríkiseinokun á smásölu áfengis sem er við lýði á mörgum Norðurlandanna stuðli að minni neyslu. Margar alþjóðlegar rannsóknir staðfesta þessar niðurstöður.Takmarkað aðgengi og eftirlit með hverjir kaupa áfengi t.d. með því að setja lög um lágmarksáfengiskaupaaldur skilar sér í betri lýðheilsu. Hingað til hefur það verið stefna íslenskra stjórnvalda að taka mið af því að áfengi er ekki venjuleg neysluvara og þess vegna sjálfsagt að hafa eftirlit með og leitast við að draga úr neyslu þess fremur en að auka hana.


Alþjóðaheilbrigðismálastofnunun hefur hvatt stjórnvöld alls staðar til að notfæra sér ríkiseinokunarleiðina og önnur möguleg úrræði, enda áfengi og neysla þess stórt heilbrigðisvandamál um allan heim. Samkvæmt tölum WHO deyja árlega 3 milljónir manna af völdum áfengisneyslu. Vandinn er útbreiddastur í Evrópu. Á sama tíma og vísindamenn um allan heim birta niðurstöður sem sýna ótvírætt fram á skaðsemi áfengisneyslu bæði hvað varðar líkamlega og andlega heilsu, félagslega stöðu og vellíðan berjast hér á landi margvíslegir þrýstihópar fyrir afnámi þeirra hafta sem stjórnvöld hafa sett á aðgengi að þessari vöru. Þegar hefur verið sýnt fram að neysla Íslendinga á áfengi eykst ár frá ári og við sem þjóð ættum því frekar að taka höndum saman og berjast fyrir að lögum um smásölu áfengis sé framfylgt sem og banni við áfengisauglýsingum. Félagslega getum við einnig tekið höndum saman og ákveðið að áfengi eigi ekki erindi inn á fjölskylduviðburði.

 

bottom of page