Góðar gjafir í Ramadan
- 13 hours ago
- 1 min read

Samhjálp fær góðar gjafir víða að og við höfum lengi fundið og vitað að það er sælla að gefa en þiggja. Nýlega barst matargjöf í eldhús Kaffistofunnar frá Sunnudagaskólanum í Reykjavík í tilefni að Ramadan, helgum mánuði múslima og þessi fallega kveðja fylgdi:
„Þeir sem gefa ölmusu leynt og ljóst um nætur sem daga, munu taka laun hjà Herra sínum (Guð). Ekkert þurfa þeir að óttast né neitt að harma.“ (Kóraninn 2:275).
Við þökkum innilega fyrir gjöfina og kveðjuna.




Comments