top of page

Nýtt meðferðarheimili opnað

  • 59 minutes ago
  • 2 min read

Nýlega birtist á vef stjórnarráðsins fréttatilkynning þess efnis að nýtt meðferðarheimili fyrir unglinga hefði opnað í nýju húsnæði í Gunnarsholti. Meðferðarheimilið heitir Lækjarbakki og tók á móti fyrsta barninu þann 6. mars síðastliðinn. Lengi hefur verið beðið eftir fleiri úrræðum fyrir börn í vanda og við hjá Samhjálp fögnum þessum áfanga.


Í fréttatilkynningu ríkisstjórnarinnar segir ennfremur:


„Opnunin markar mikilvægan áfanga í framhaldsmeðferð fyrir drengi sem glíma við vímuefnavanda.


Nýja meðferðarheimili Barna- og fjölskyldustofu eykur getu samfélagsins til að bregðast við erfiðum og flóknum málum barna og ungmenna á Íslandi. Á Lækjarbakka verður pláss fyrir sex ungmenni.


„Löng bið er á enda og mikið fagnaðarefni að Lækjarbakki sé tekinn til starfa í nýju og endurbættu húsnæði” segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.


Nýtt og endurbætt húsnæði er sérstaklega hannað með þarfir skjólstæðinga í huga þar sem horft er til að skapa heimilislegt yfirbragð og hlýlegt umhverfi með öryggi í fyrirrúmi.Sterkur faglegur grunnur er undirstaða vandaðrar meðferðar og öruggrar þjónustu. Undanfarna mánuði hefur starfsfólk Lækjarbakka unnið af þrautseigju við undirbúning starfseminnar.


Starfsmenn hafa hafið störf á Lækjarbakka og fengið yfirgripsmikla þjálfun í þeirri aðferðafræði sem beitt er á meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu. Meðferðin er sérhæfð fyrir ungmenni og byggir á samþættingu gagnreyndra aðferða og einstaklingsmiðaðrar nálgunar.


Formleg opnun fer fram síðar í mánuðinum en brýnt er að hefja þjónustu strax til að mæta þörfum barna sem beðið hafa eftir langtímameðferð. Tekið var því á móti fyrsta skjólstæðingnum um leið og tilskilin leyfi lágu fyrir.

Vonir standa til að þessi nýja aðstaða reynist farsæl til framtíðar fyrir börn í viðkvæmri stöðu sem þurfa sérhæfða þjónustu og stuðning.


„En betur má ef duga skal og eru fleiri járn í eldinum,“ segir Inga. „Nú er tími til að börnin okkar fái þá þjónustu sem þurfa. Börnin fyrst, svo allt hitt.“

Comments


bottom of page