top of page

„Allir rólegir og kurteisir“

  • 24 minutes ago
  • 3 min read

Rúna tekur við fyrstu húfunni frá Pétri.
Rúna tekur við fyrstu húfunni frá Pétri.

Samhjálp hefur löngum notið þess að á Íslandi ríkir mikil samkennd og löngun til að hjálpa viti fólk af öðrum í neyð. Pétur H. Hansen eigandi MarkóMerki er einn þeirra sem ekki skirrist við að leggja sitt af mörkum ef hann sér einhvers staðar þörf. Hann hóf nýlega söfnun til að geta keypt húfur og hálskraga handa gestum Kaffistofu Samhjálpar til að tryggja að þeir hefðu skjól í vetrarkuldanum. Pétur kom sjálfur í heimsókn á Kaffistofuna og lýsir heimsókninni á facebook-síðu sinni.

 

„Snemma í morgun fór ég í heimsókn til kaffistofu Samhjálpar og afhendi þeim 250 loðfóðraðar prjónahúfur með eyrum og hálskraga úr flísefni. Skjólstæðingar Samhjálpar voru mjög þakklátir og fékk ég mikið þakklæti frá þessu góða fólki,“ segir Pétur og bætir við. „Ég var þarna í um það bil eina og hálfa klukkustund og ég verð nú bara að segja það að það sem verið er að blása upp í fjölmiðlum er svo skökk mynd af raunveruleikanum.

 

Þegar ég kom þá var ekki búið að opna fyrir skjólstæðingum. Það voru sirka fimmtán manns sem biðu fyrir utan og þeim fjölgaði verulega eftir að búið var að opna. Ég ætla að giska á að það hafi verið svona um fimmtíu manns að jafnaði inni í einu og þetta var gegnumgangandi á meðan ég var þarna þannig að það hafa líklega farið hundrað til hundrað og fimmtíu manns í gegn á meðan ég staldraði við. Allir fengu húfu og hálskraga fyrir vetrarhörkuna sem er framundan. 

 


Svona virka húfurnar og hálskragarnir saman til að halda á mönnum hita.
Svona virka húfurnar og hálskragarnir saman til að halda á mönnum hita.

Nú skal ég segja ykkur svolítið sem ég tók sérstaklega eftir vegna ummæla um Samhjálp undanfarnar vikur. Ég sá ekki vín né annað á nokkrum manni. Allir rólegir, kurteisir, nærgætnir og virðing borin fyrir náunganum, heilsuðu, buðu góðan daginn og kinkuðu kolli. Allir gengu frá sínum bolla og disk og ekki sást svo mikið sem sígarettustubbur fyrir utan húsið. Ég held að þeir sem gaula mest og garga hæst ættu að fara þangað og fá sér sæti og kynnast því hvernig starfsemin þarna fer í raun fram. Að lokum vil ég þakka öllu því hjartahlýja fólki sem lögðu þessari söfnun lið. Þið voruð frábær elskurnar.“

 

Nú safnar Pétur fyrir sokkum og vettlingum handa skjólstæðingum Kaffistofunnar.
Nú safnar Pétur fyrir sokkum og vettlingum handa skjólstæðingum Kaffistofunnar.

Okkur lék forvitni á að vita hvort Pétur hefði fengið viðbrögð við færslunni og hringdum því í hann.

 

„Já, síminn hefur ekki stoppað,“ segir hann. „Fólk sem vill taka undir það sem ég var að segja og leggja lið en ég hygg á frekari söfnun. Ég tók nefnilega eftir því að þegar verið var að afhenda húfurnar og hálskragana að sumir skjólstæðingarnir voru ekki með vetttlinga og það sem ég sá á fótum þeirra voru þunnir sokkar. Það er auðvitað ótækt í brunakulda en það er spáð kólnandi veðri. Ég verð líka að segja að ég áttaði mig á í þessari heimsókn að skjólstæðingahópur Kaffistofunnar er fjölbreyttari en flestir gera sér grein fyrir. Ég sá hvorki vín né annað á nokkrum manni. Ég fann líka að mig langaði til að leggja þessari starfsemi frekara lið. Það er ótrúlega verðmætt starf sem þarna fer fram. Viðbrögðin við sokka og vettlingasöfnuninni fóru svo fram úr vonum að hún er að verða búin. Í heildina þurfum við að safna 255,000 krónum. 190,000 krónur eru komnar inn á reikninginn. Það vantar 65,000 krónur. Vonandi næst það fyrir helgina. Stefnt er að því að geta afhent sokkana og hanskana föstudaginn 20. febrúar.“

 

Við hjá Samhjálp þökkum Pétri kærlega fyrir hans framlag og hlýhug.  

 

Comments


bottom of page