Samhjálp er 53 ára
- steingerdur0
- 2 days ago
- 2 min read

Föstudaginn 31. janúar varð Samhjálp 53 ára. Ekki fer hjá því að margt breytist á rúmri hálfri öld en kærleikur er enn lykilþáttur í öllu starfi samtakanna og starfsfólk hlakkar til að takast á við næstu verkefni með hann að leiðarljósi. Flutningur Kaffistofunnar í nýtt þjónustuhúsnæði er efst á baugi hvað það varðar, áframhaldandi uppbygging áfangaheimila og stuðningur við blómlegt starf í Hlaðgerðarkoti.
Það var árið 1973 á fimmtugsafmæli Einars J. Gíslasonar að grunnur var lagður að stofnun Samhjálpar. Hann fékk þá hugmynd að biðja þá sem hygðust færa honum afmælisgjafir að hafa þær í formi peninga og láta upphæðina sem safnaðist renna til stofnunar hjálparsamtaka sem fengju nafnið Samhjálp. Strax í byrjun söfnuðust 122.000 krónur en áfram var safnað og í mars var upphæðin komin í 400.000 krónur.
Þá var hafist handa við að leita að hentugu húsnæði fyrir meðferðarheimili. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur átti Hlaðgerðarkot í Mosfellsdal og hafði sett húsið á sölu en setti það skilyrði að kaupandinn hygðist stunda einhvers konar góðgerðastarfsemi. Afmælisgjöf Einars nægði fyrir útborgun í Hlaðgerðarkot. Þar var opnað meðferðarheimili og fyrsti forstöðumaður þess var Georg Viðar Björnsson.
Síðan þá hefur starfsstöðvum Samhjálpar fjölgað og í dag reka samtökin Kaffistofu Samhjálpar og þar eru gefnar allt að 350 máltíðir daglega og fjöldi manns leitar þangað til að þiggja heitan mat, vinsemd, samveru og hlýju og áfangaheimili í Reykjavík og Kópavogi. Samtökin eru einnig einn rausnarlegasti gefandi jólagjafa á landinu, því árlega er pakkað um það 400 jólagjöfum á skrifstofu Samhjálpar. Þá hefð má rekja til Guðmundu Guðrúnar Sigurðardóttur, sem á sjötta áratug síðustu aldar hóf að gefa föngum í Reykjavík jólagjafir.
Við hjá Samhjálp erum þakklát fyrir allar þær fallegu sigurstundir sem samtökin hafa náð að stuðla að á þessum árum sem liðin eru frá stofnun og hlökkum til að takast á við nýjar áskoranir, halda áfram að rétta fram hjálparhönd og horfa á fólk ná bata og finna leiðina til betra lífs.




Comments