top of page

HEILBRIGÐISRÁÐHERRA

  • Mar 8, 2016
  • 1 min read

KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON HEIMSÆKIR HLAÐGERÐARKOT






Góð heimsókn ráðherranna Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisrráðherra og Vilborg Ingólfsdóttir skrifstofustjóri heilbrigðisráðuneytisins heimsóttu Hlaðgerðarkot Síðustu vikurnar höfum við fengið góða gesti til okkar í Hlaðgerðarkot. Þann 16. febrúar komu Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar og Guðlaugur Þór Þórðarson varaformaður. Eygló Harðardóttir Félags- og húsnæðismálaráðherra heimsótti okkur 23. febrúar og þann 3. mars kom Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráherra til okkar. Það er okkur mikil ánægja að taka á móti góðum gestum og fá tækifæri til að kynna fyrir þeim starfið í Hlaðgerðarkoti. Gestirnir lýstu yfir ánægju sinni með starf Samhjálpar og þeim góða árangri sem hefur náðst í meðferð áfengis- og vímuefnaneytenda. Gestirnir hvöttu Samhjálp til dáða og vilja öll leggja sitt á vogarskálarnar til að efla þetta góða starf.

Comments


bottom of page