top of page

Kærleiksríka konan á Njálsgötu

  • Nov 30, 2025
  • 1 min read

Í desember minnist starfsfólk Samhjálpar jafnan Guðmundu Sigurðardóttur. Hún var ákaflega kærleiksrík kona, gaf heimilislausum að borða og heimsótti fanga í fangelsin. Hún átti frumkvæði að því að gefa föngum jólagjafir. Siður sem Samhjálp hefur haldið við og framundan eru miklar annir við að pakka þeim. Í ár fáum við hjálp frá skjólstæðingum okkar í Hlaðgerðarkoti en í sumar færðu dætur Guðmundu fallega perlumynd af síðustu kvöldmáltíðinni til minningar um móður sína.


Guðmunda Guðrún Sigurðardóttir
Guðmunda Guðrún Sigurðardóttir

Guðmunda átti sæti í fyrstu stjórn Samhjálpar. Hún og maður hennar bjuggu að Njálsgötu 17 í Reykjavík og eitt sinn var maður hennar, Ólafur Þorsteinsson, að koma heim í hádegismat. Nokkrir fastagestir Guðmundu biðu á tröppunum eftir mat og þegar Óli gerði sig líklegan til að ganga inn sagði einn gesturinn: „Heyrðu góði, ekkert vera að ryðjast fram fyrir. Það er röð!“


Guðmunda starfaði einnig í Hlaðgerðarkoti um tíma á upphafsárunum. Það er því vel við hæfi að þessi glæsilega perlumynd dóttur Guðmundu prýði heimilið í Hlaðgerðarkoti. Það er Ester Ólafsdóttir, löngum kennd við Pelsinn og dóttir Guðmundu, perlaði myndina.


Comments


bottom of page