top of page

Mannauður Kaffistofunnar í nýju Samhjálparblað

  • 2 days ago
  • 1 min read

Samhjálparblaðið er komið út. Að þessu sinni er mannauður Kaffistofunnar í forgrunni og viðtöl við hluta starfsfólksins mynda forsíðuumfjöllun blaðsins. Að auki er viðtal við Elvar Bragason stofnanda Tónasmiðjunnar. Hann fór brotinn út í lífið eftir langvarandi einelti í heimabæ hans Húsavík en tókst að finna frelsi í trúnni og tónlistinni. Hann hjálpar nú öðrum að finna sína leið að lífshamingjunni. Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar áhrifamikla hugvekju um líðan manneskju í fangelsi þegar hún finnur hlýhug annarra til sín.

Við fjöllum um Grettistak, úrræði sem hefur hjálpað mörgum að finna fæturna og læra að hlaupa í viðtali við Elínu Guðjónsdóttur, Exit – leið út úr afbrotum verkefni sem ætlað er að hjálpa fólki að rjúfa vítahring fíknivanda og afbrota og heyrum hvað Soffía Hjördís Ólafsdóttir hefur að segja um stefnuna Housing First og stöðu heimilislausra á Íslandi. Við heyrum líka í Söru Karlsdóttur og Sigurði Fossdal um eftirfylgni eftir meðferð í Hlaðgerðarkoti, nýjan valkost sem farið var að bjóða upp á í haust. Margt fleira áhugavert er að finna í fallegu blaði en hægt er að nálgast það á netinu og á skrifstofu Samhjálpar í Skútuvogi 1g.

Comments


bottom of page