Nám í áfengis og vímefnaráðgjöf í HA
- steingerdur0
- 4 days ago
- 2 min read

Á vef stjórnarráðssins kemur fram að heilbrigðisráðuneytið hefur gert samning við Háskólann á Akureyri um tíu milljóna króna styrk vegna undirbúnings námsbrautar í áfengis- og vímuefnaráðgjöf við skólann. Námið verður þriggja ára nám til BS-prófs (180 ECTS eininga nám á grunnstigi) og er stefnt að því að kennsla hefjist haustið 2026.
Háskólinn á Akureyri hóf undirbúning vegna þessa nýja náms síðastliðið vor í nánu samstarfi við SÁÁ. Gert er ráð fyrir að námið heyri undir hjúkrunarfræðideild skólans og verði bæði fræðilegt og klínískt þannig að það nái jafnframt yfir starfsnám í faginu. Háskólinn mun því jafnframt halda utan um alla verklega þjálfun nemenda á heilbrigðisstofnunum. Í hinu nýja námi verður einnig fjallað um spilafíkn.
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra fagnar frumkvæði Háskólans á Akureyri: „Háskólinn hefur fært skýr rök fyrir nauðsyn þess að færa nám áfengis- og vímuefnaráðgjafa upp á háskólastig. Þannig er vægi fagsins styrkt innan heilbrigðiskerfisins og forsendur fyrir áframhaldandi þróun þess til framtíðar. Þetta er mikilvægt því áfengis- og vímuefnameðferð gerir miklar kröfur til sérþekkingar og teymisvinnu fagfólks sem þarf að efla og styrkja til framtíðar“.
SÁÁ hóf á sínum tíma kennslu og þjálfun fyrir áfengis- og vímuefnaráðgjafa og hefur stéttin verið löggilt um árabil. Frá árinu 2023 hefur Símenntun Háskólans á Akureyri séð um bóklega hluta námsins en verklegi hluti þess fer enn fram á heilbrigðisstofnunum SÁÁ. Það er ekki síst SÁÁ sem hefur bent á þörf fyrir að námið fari inn í formlega skólakerfið hér á landi og er þessi breyting eitt af lokaskrefunum í þeirri þróun sem heilbrigðisráðuneytið hefur lagt áherslu á, að allt nám til starfsleyfis löggiltra heilbrigðisstétta fari fram hjá formlegum menntastofnunum.
„Áfengis- og vímuefnaráðgjafar eru grunnstoð í nútíma fíknmeðferð og mikilvægt að sú víðtæka þekking og reynsla sem stéttin býr yfir haldi áfram að þróast og eflast um leið að aðrar stéttir sem koma að meðferð geti leitað á jafningjagrundvelli í faglegan þekkingarbrunn áfengis- og vímuefnaráðgjafa“ segir Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ. Hún fagnar því hve hratt og vel Háskólinn á Akureyri hefur unnið að undirbúningi námsins.




Comments