Samhjálp á hlaupum
- steingerdur0
- May 13
- 1 min read

Ert þú búin/n að reima á þig hlaupaskóna og farin/n að skokka úti í góða veðrinu? Ef svo er viljum við hvetja þig til að að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka þann 23. ágúst næstkomandi og hlaupa fyrir Samhjálp. Í fyrra hljóp metfjöldi þátttakenda fyrir Samhjálp og við höfum hugsað okkur að fjölga þeim enn í ár. Ef þú vilt vera með skráðu þig á www.hlaupastyrkur.is og hafði svo samband við skrifstofu Samhjálpar Skútuvogi 1g. Við verðum með skipulagðar hlaupaæfingar í sumar og ætlum að styðja hlauparana okkar á margvíslegan hátt.
Undanfarin ár hafa safnast veglegar upphæðir og við hjá Samhjálp erum ákaflega þakklát öllu því frábæra fólki sem hefur lagt okkur lið á þennan hátt. Við viljum í ár sýna að við metum samhug þeirra, dugnað og framtakssemi og hvetjum alla sem vettlingi geta valdið til að taka þátt og vera með Samhjálp á hlaupum í sumar.
Reykjavíkurmaraþonið hefur fest sig í sessi og vekur orðið athygli langt út fyrir landssteinana. Að geta ræktað eigið heilbrigði og lagt góðum málefnum lið er svo aukabónus fyrir alla þá sem taka þátt hvort sem það er með að hlaupa, ganga eða styrkja. Það er ómetanlegt að geta sitt af mörkum til að efla samfélagsleg tengsl og skapa vitundarvakningu um stöðu jaðarsettra hópa. Síðastliðið ár hefur verið mikil umræða samfélagslega ábyrgð og hvernig við getum öll tekið höndum saman til að koma í veg fyrir alvarleg áföll. Góðgerðarfélög á borð við Samhjálp gegna lykilhlutverki í að standa vörð um réttindi minnihlutahópa og mæta fólki í neyð með kærleika og virðingu.
Comentarii